Bergmál - 01.05.1955, Síða 35
1955
B E R G M Á L
GRACE KELLY
Bezta leikkona ársins 1954.
Nýskeð hefir ameríska kvikmynda-
leikkonan Grace Kelly hlotið titilinn
„bezta leikkona ársins 1954“ í heima-
landi sínu.
Undanfarna mánuði hefir verið
skrifað margt og mikið um þessa leik-
konu, jafnvel engu minna en Audrey
Hepurn. Og hefir Grace Kelly oft
verið nefnd í blöðunum: Hin nýja
drottning Hollywood.
Grace Kelly er fædd 12. nóvember
1928 í Fíladelfíu, en faðir hennar er
stórefnaður byggingaverkfræðingur,
John B. Kelly, sem tvisvar hefir hlotið
gullmedalíu fyrir kappróðra á Ólymp-
íuleikum, sem einn úr liði Ameríkana.
Grace Kelly og' William Holden
í myndinni „Brýmar við Toko-Ri“.
Grace Kelly og Gary Cooper
í myndinni „High noon“.
Þegar á unga aldri var Grace send í
beztu. ungmeyjaskóla, sem völ var á í
Bandaríkjunum, og loks var svo
menntun hennar slípuð og fínpússuð
í Sviss.
Eftir Evrópudvölina talaði hún ensk-
una með ósviknum Oxford hreim, en
jafnframt hafði hún lært vel bæði
þýzku og frönsku. Og vafalaust hefir
það verið í Evrópu, sem hún náði að
tileinka sér þann „meginlandsblæ",
eða „lady-yfirbragð“, sem Ameríkan-
ar tala um í framkomu hennar og
svipmóti, og sem hefir án efa stuðlað
meira að skjótum frama hennar í
kvikmyndaheiminum en nokkuð
annað.
Amerískar kvikmyndir hafa löng-
um saknað mjög einhverrar dömu
(,,lady“,) hefðarkonu á meðal allra
„stássmeyjanna" og „swing-brúð-
anna“ í Hollywood, og vitanlega hefir
amerískum kvikmyndaframleiðendum