Bergmál - 01.05.1955, Side 36
Maí
Bergmál
Grace Kelly og Clark Gable
í „Mogambo“.
sviðið það sárt að þurfa ýmist að fá
að láni eða kaupa utanlands frá leik-
konur í lady-hlutverk (Merle Oberon,
Greer Garson, Deborah Kerr o. s. frv.).
Nú fyllir Gracy Kelly þetta skarð, og
var þá ekki lengi verið að tvínóna við
að krýna hana drottningarkórónu.
Grace Kelly er hávaxin, en tæpast
er hægt að kalla hana fegurðardís, til
þess er nef hennar of stutt og varirnar
of þunnar. Hún er auk þess mjög nær-
sýn og notar því að jafnaði gleraugu
í einkalífi sínu. En andlitsdrættir
hennar eru reglulegir, vöxturinn
spengilegur og hár hennar ljóst. Auk
þess ber hún sig eins og drottning.
Enda tala kvikmyndastjórnendur þeir,
sem hún hefir unnið með um hana
eins og drottningu.
Fyrsta kvikmynd Grace Kelly hét
„Héraðsdómarinn", og lék hún þar á
móti Gary Cooper. Á móti Clark
Gable lék hún í ævintýramynd frá
Afríku, sem hét „Mogambo". Þá hefir
hún einnig leikið á móti þeim James
Stewart, Ray Milland og William
Holden, svo að mótleikarar hennar eru
auðsjáanlega ekki valdir af verri end-
anum.
Er hún hafði leikið í „Héraðsdómar-
inn“, birti ameríska stórblaðið „Life“
forsíðumynd af henni og er það talin
ein bezta auglýsing, sem kvikmynda-
stjörnur geta fengið í Ameríku, en
„Life“ talaði um hana sem „sambland
frískleika, kvenlegrar dyggðar og
duldra kynhrifa.“
Stuttu eftir að þessi forsíðumynd
birtist í „Life“ bauð Metro-félagið
henni samning með 750 dollara viku-
launum, sem er hvorki mikið né lítið
fyrir kvikmyndastjörnu. En Metro
hefir þó grætt allvel á þessum samn-
ingi, því að eftir árið hafði félagið
fengið 42.500 dollara fyrir að leigja
öðrum kvikmyndafélögum hana. Síð-
asta myndin, sem Grace Kelly hefir
leikið í, mun vera kvikmyndin „Grípið
þjófinn", sem tekin var á Riviera-
ströndinni síðastliðið sumar, en annað
aðalhlutverk í þeirri mynd lék Gary
Grant.
Hér í Reykjavík hefir Grace Kelly
sézt í myndinni „M“, sem Stjörnubíó
sýndi fyrir rúmu ári síðan, og sagt er
að myndin „Héraðsdómarinn", eða
„High noon“ hafi einnig verið sýnd í
Reykjavík, í Tripolibíó.
Hér er nefnd kvikmyndin „M“, en
það var hún nefnd hér í Stjörnubíói,
og hefir Bergmál minnst fyrr á þá
mynd. Hún heitir á ensku „Dial M for
murder", og hefir nú verið skýrð á
íslenzku „Lykillinn að leyndarmálinu,"
en það hafa nokkrir ungir leikarar í
Rvík skýrt hana, eða öllu heldur leik-
ritið sjálft, svo sem kunnugt er.
!ll
34