Bergmál - 01.05.1955, Síða 37
B E R G M Á L
1955
Grace Kelly og Fredcríck Marsh.
Hér er mynd af þeim Grace Kelly
og Fredric March, eins og þau líta út
í kvikmyndinni „Brýrnar við Toko-
Ri“, en sú mynd er gerð eftir sam-
nefndri sögu eftir James Michener.
Paramount-félagið í Hollywood gerði
þessa mynd austur í Japan og voru
Frederic March, Grace Kelly og
William Holden í aðalhlutverkum.
auk þess léku Mickey Rooney og Earl
Holliman einnig í þessari mynd.
Fredric Marsh sést sjaldan nú orðið
í kvikmyndum, því að sagt er að það
séu ekki nema úrvals hlutverk sem
geti ginnt hann að heiman, en hann
er bóndi i Connecticut. Kona hans er
fyrrverandi leikkona, Florence Eld-
ridge.
Fredric March leikur hlutverk Tarr-
ant aðmíráls í þessari mynd, og hefir
hann sagt um það hlutverk: „Mér
fannst ég mega til með að spreyta mig
við að lýsa karakter þessa stranga,
kjarkmikla sjóliðsforingja, sem misst
hafði tvo syni sína í sama striði og var
nú fyrirskipað að reka unga menn út
í sama lífsháska og synir hans höfðu
lent í. í stríði, sem fæstir þeirra skildu
hvern tilgang hefði."
Hetja sönn á hólmi eigi
hræðast kann.
Gakktu djarfur djöfsa móti.
Dreptu hann.
(Kristján frá Djúpalæk).
35