Bergmál - 01.05.1955, Síða 47
1955
Bergmál
Hann á sér greni einhvers staðar
í þessum fjöllum — —“
„Já, og þar býr hann náttúr-
lega með rauðhærðri fegurðar-
dís,“ greip majórinn fram í.
Lartal lét sem hann heyrði
ekki kaldhæðnina.
„Hlæjið eins og yður lystir,
það skiptir engu máli. En ef mér
tekst að finna stúlkuna, þá mun
ég einnig finna Omar. Fáið mér
nokkurn liðsstyrk og þá skal ég
svæla Omar út úr greninu."
„Faul,“ sagði majórinn vin-
gjarnlega. „Þú verður að gleyma
þessari stúlku og þessum fjöll-
um með leyniborgum sínum og
drísildjöflum. Útlendingaher-
deildin hefur þegar kannað þau
til 'hlítar. Þar finnast engir
leynistígir."
Lartal reis á fætur. „Ég óska
leyfis til að hafa tal af yfir-
hershöfðingjanum,“ sagði hann
alvarlegur í bragði.
Majór Vasil yppti öxlum, en
lofaði því samt, að hann skyldi
sækja um áheyrn fyrir hann.
En viðtalið reyndist ekki
árangursríkara en Lartal hefði
mátt búast við. Yfirhershöfð-
inginn veitti honum að vísu
viðurkenningu fyrir það hugar-
far og þann kjark, sem fælist í
því að vilja koma fram hefndum
fyrir menn sína.
„En ég get ekki samþykkt að
þér ráðizt í leiðangur, sem
byggður er á fleipri einu og hjá-
trúarfullum orðrómi,“' bætti
hann við. „Þar sem þér eruð ekki
orðnir hershöfðingi ennþá, verð-
ið þér að fylgja fyrirskipunum
mínum, en getið ekki farið eftir
hugmyndum yðar um rauð-
hærða eyðimerkurdís.“
Yfirhershöfðinginn gaf til
kynna að áheyrninni væri lokið.
Majórinn og Lartal kvöddu að
hermannasið og fóru. Úti fyrir
beið þeirra vagn. Er þessir tveir
menn nálguðust vagninn, mjak-
aði arabiskur betlari sér í veg
fyrir þá. Hanri rétti snögglega
fram höndina og stakk sendi-
bréfi í lófa Vasils majórs, en
andartaki síðar var hann horf-
inn í mannþröngina.
Majórinn leit á utanáskrift
bréfsins, en hún var „Lartal
kapteinn,“ skrifað með nettri og
æfðri. hönd.
Majórinn rétti vini sínum
bréfið þegar í stað og muldraði
eitthvað í barm sér. Lartal reif
bréfið upp.
Út úr umslaginu féll nisti —
nisti, sem hann hafði borið dag-
inn sem orustan stóð, en sem
hann hafði ekki borið þegar
hann sneri til herbúða TJtlend-
ingaherdeildarinnar aftur.
45