Bergmál - 01.12.1955, Qupperneq 66
VERÐLAUNAÞRAUT
Hér á síðunni á móti (3. kápusíðu) sjáið þið tígul, sem samsettur
er úr eintómum tölum, en neðst við hann stendur ,.start“ og táknar
að byrja á að draga strik þaðan eftir vissum reglum þar til komið
er upp í topp, þar sem stendur „mal“.
Hjá „start“ stendur talan 3, og það táknar það. að frá þeirri tölu
má færa sig um þrjú sœti (og aðeins þrjú, hvorki fleiri né fœrri)
í hvaða átt sem hægt er. ------
TIL DÆMIS:
Frá einhverri tölu í miðjum tíglinum er um átta leiðir að velja.
—• Nú skulum við líta á töluna 2, sem er einmitt í miðju tígulsins,
og gera ráð fyrir að við værum komin þangað á leið okkar upp í
markið í toppnum. Þaðan getum við farið: 1) lóðrétt upp, og lendum
við þá aftur á tölunni 2. — 2) Eftir skálínu upp á við til hægri. og þá
lendum við á tölunni 3. — 3) Lárétt til hægri, yfir á töluna 4. —
4) Eftir skálínu niður á við til hœgri, og á töluna 2. — 5) Lóðrétt
niður, en þá lendum við á auðum reit (sjá þar um, neðar). 6) Eftir
skálínu niður á við til vinstri, yfir á töluna 3. — 7) Lárétt til vinstri,
yfir á töluna 7. — 8) Að lokum eftir skálínu upp á við til vinstri,
yfir á töluna 2.------
Frá start-tölunni er því um þrjár mögulegar leiðir að velja,
nefnilega: Eftir skálínu upp á við til vinstri, og lendum við þá á
tölunni 5. — Lóðrétt upp, á töluna 4. — Og eftir skálínu upp á við
til hægri, en þá lendum við á töluna 7.
Frá þeim reit, sem maður velur til að draga strikið á frá start-
staðnum, má maður fœra sig um jafnmarga reiti og talan þar segir
til um.--------
Lendi maður á auðum reit, á að byrja að nýju á start-tölunni. —
Þrautin er sem sagt, í því fólgin að komast upp í topp (mál)
tígulsins, eftir þessum reglum.
Það er aðeins til einn möguleiki við að leysa þessa þraut.
Sendið lausnir til Bergmálsútgáfunnar, Kópavogsbraut 12, Kópa-
vogi fyrir áramótin.
I. VERÐLAUN: Ársáskrift Bergmáls.
II. VERÐLAUN: Einn af eldri árgöngum Bergmáls.
64