Stjörnur - 01.02.1950, Qupperneq 11
er gestur í ýmsum merkum leik-
húsum, en hún þykir ágæt leik-
kona. Nú fyrir skömmu kom upp
eldur í leikhúsi, þar sem hún var
að leika. Hún gekk þá fram á svið-
ið og sagði áheyrendum að ekkert
væri að óttast, íkviknunin hefði
aðeins verið mjög smávægileg og
myndi engum spjöllum valda, ef
fólk tæki þessu með stillingu. Hún
fór svo að segja smellnar gaman-
sögur og gat með því komið í veg
fyrir að fólkið yrði tryllt af
hræðslu og træði hvert annað
undir, eins og oft á sér stað við
slík tækifæri. Mun það vera eins
dæmi að hægt sé að halda fólki
þannig í skefjum. Eldurinn var
svo slökktur á svipstundu og leik-
urinn hélt áfram eins og ekkert
væri.
* * Clark Gable þykir mjög gam-
an að bílum og öllu sem þeim til-
heyrir. Hann er hinn slyngasti
bílaviðgerðamaður þegar því er
að skipta. Hann hefur oft sagt við
vini sína: „Ef eitthvað er að
skrjóðnum ykkar, þá er bara að
hringja og ég kem strax og geri
við hann.“
Fleiri en leikarar myndu gjarna
þiggja boðið, ef þeir vissu síma-
númer Clark Gable, og væri þá
hætt við að hann hefði lítinn tíma
til að sinna öðru Vinir hans taka
tilboðið því ekki of hátíðlega.
Greer Garson aftur í hlutverki
Mrs Miniver.
* * Greer Garson dvelur nú í
Lundúnum. Þar er hafin undir-
búningur að framkalli á Mrs
Miniver, og mótleikari hennar
verður einnig nú Walter Pidgeon.
Nýlega var hún gestur í Golders
Green Hippodrome leikhúsinu,
þar sem hún kom fyrst fram og sló
í gegn fyrir mörgum árum. Hún
var kölluð fram á leiksviðið og
hyllt ákaflega, fólkið linnti ekki
látum fyrr en hún ávarpaði það.
*' „Kim“, hin fræga drengjasaga
Rudyard Kiplings verður nú
kvikmynduð og leikur Dean
Stockwell titilhlutverkið. Mynd-
in verður tekin í Indlandi og verð-
ur litmynd. Errol Flynn á að leika
Rauðskegg.
STJÖRNUR II