Stjörnur - 01.02.1950, Side 14
og rak leikskóla. Hún var nokkuð
eldri en Clark. Hún fullvissaði
hann um að hann gæti orðið mik-
ill leikari — en Clark var einmitt
um þessar mundir að missa trúna
á sjálfum sér og var næst skapi
að yfirgefa leiklistina. Leikkona
þessi vakti á ný áhuga hans og
lagði sig fram um að kenna hon-
um. Hún útvegaði honum svo
fasta stöðu við eitt leikhúsið í
borginni — það var að vísu ekki
í neinni heimsborg — og Clark
hlaut hinar beztu viðtökur. Upp
úr þessu giftu þau sig. Það var ár-
ið 1924. Þá var hann 22 ára gam-
all.
Hjónaband þeirra Clarks og
Josephinu var sex ára gamallt.
Þeim kom þá saman um að skilja,
og Clark hélt til New York.
í New York var Clark öllum ó-
kunnur. En hvernig sem það at-
vikaðist komst hann í kynni við
ríka ekkju, sem hann giftist. Hún
hét Rita Langham og var 10 árum
eldri en hann. Lét hún huggast og
lifðu þau glöð og ánægð saman í
nokkra mánuði, hún vildi hafa
Clark fyrir sig, en kærði sig ekk-
ert um að hann væri að leika, En
nú kom auðvitað stjörnuuppgötv-
ari til sögunnar og „fann“ Clark
Gable og um leið var því hjóna-
bandi slitið, — „Þau skildu sem
vinir“, stendur skrifað. Aðrar
heimildir segja að Rita hafi átt
sinn þátt í því að koma Clark til
vegs og frama, en þegar hún hafði
orðið þess áskynja að hann var
orðinn hrifinn af Carole Lombard
hafi hún dregið sig í hlé.
Það var Metro-Goldwyn-May-
er-kvikmyndafélagið, sem var svo
heppið að uppgötva Clark Gable,
— og var þó fæstum ljóst í fyrstu
hvílíkur fengur var í þessum unga
leikara. En strax þegar fyrsta
kvikmynd hans kom fram, vissu
bíógestirnir að hér var upprisinn
mikill spámaður, eða réttara sagt
upprunnin mikil stjarna.
Framhald sögu Clark Gable
þekkja flestir. Hina skömmu ham-
ingjusögu hans og hinnar fögru
og vinsælu Carole Lombard, sem
hann giftist næst, kunna allir. Nú
fyrst var Clark hamingjusamur.
En í upphafi stríðsins 1942 fórst
Carole Lombard í flugslysi. Harm-
aði Clark hana mjög. Sjálfur gerð-
ist hann nú flugmaður í Banda-
ríkjaher og gat sér góðan orðstír.
Eftir 3 og hálfs árs herþjónustu
hvarf Clark Gable svo loks í
stríðslok aftur til Hollywood og
var fagnað þar eins og þjóðhöfð-
ingja, er hann kom.
Þegar það fréttist að Clark væri
kominn til Hollywood, gáfu blöð-
in út fregnmiða, þar sem skrifað
stóð: „Clark Gable er kominn aft-
ur“, og aukaútgáfur blaðanna,
sem fylgdu í kjölfar miðanna,
seldust svo ört að hinar hraðvirku
prentvélar höfðu ekki undan.
X4 STJÖRNUR