Stjörnur - 01.02.1950, Page 20
FULLYRT ER að nýju koss-
ekta varalitirnir spari kvikmynda-
félögunum í Hollywood hundruð
þúsunda af dýrmætum dollurum
á ári hverju. Þetta virðist ótrú-
legt, en samt mun það satt. Það
er ekki fyrst og fremst vegna þess
hve mjög það spari varalitinn
sjálfan, heldur hitt, að áður þurfti
hlé eftir hverja kossasenu — og
jafnoft og hver sena var tekin —
til þess að lita varir stjömunnar
að nýju og má út vegsummerki á
viðtakanda kossins Nú þarf þessa
ekki lengur. Það er hægt að taka
hverja kossaatrennuna á fætur
annarri, og fleiri hundruð manna
sem starfa við hverja upptöku
þurfa ekki að bíða aðgerðarlausir
eins og áður. Og tíminn er sann-
arlegá'peningar í kvikmyndaver-
unum. Eins og þeir vita, sem vel
eru að sér í varalitafræðinni, er
það ekki sjálfur varaliturinn, sem
er kossekta heldur er það áburð-
ur sem borinn er á varirnar á eft-
ir varalitnum, sem myndar húð —
ekki ólíka naglalakki — og kem-
20 STJÖRNUR