Stjörnur - 01.02.1950, Blaðsíða 22
kjólnum. Joan Crawford sætir
alltaf lagi að komast það snemma
úr boði að hún geti á heimleiðinni
komið við í næturkrá. Joan Fonta
ine kemur alltaf síðust allra og
fei á undan öllum öðrum. Spencer
Tracy velur sér jafnan sæti í hópi
nokkurra karlmanna, og virðist
tilviljun ráða hverjir það verða,
en þá sömu mcun vill hann hafa í
návist sinni allt kvöldið, enda
lætur hann þeim ekki leiðast, af
öðrum gestum skiptir hann sér
ekki. Cary Grant lítur jafnan í
kring um sig er hann kemur í
samkvæmi, og er hann hefur
fundið laglega stúlku, er haxrn
hennar „selskapsherra“. Síðan
hann giftist Betsy Drake lætur
hann þó öðrum eftir að fylgja
stúlkunni heim. Og Van Johnson
.... hann nýtur þess að góður
matur er á borðum.
★
HIN NÝJA frú Gable er 39 ára
að aldri og var um skeið revyu-
leikkona í Lundúnum. Hún gift-
ist 1927 Anthony Ashley lávarði,
en við hann skildi hún til að gift-
ast hinum fræga og vinsæla enska
kvikmyndaleikara Douglas Fair-
bank eldra. Er hann lézt erfði
hún eina milljón dollara. Síðan
giftist hún enn einum enskum
aðalsmanni, Edward John Stan-
ley lávarði. Gifting þeirra Clarks
og Sylviu kom mörgum á óvart.
Fámenn veizla var haldin að
heimili einr. vinar Clark Gable í
Santa Barbara og samdægurs
héldu brúðhjónin með skipi til
Honolulu á Hawaieyjum, þar sem
þau- ætla að njóta hveitibrauðs-
daganna.
(Við höfun ekki við hendina
nema dagblaðamyndir af brúð-
hjónunum, sem ekki myndu njóta
sín í endurprentunum. Bætum úr
því síðar. — Ritstj ).
★
EINN AF frægustu hattasölun-
um í Hollywood heitir Walter
Florell — má mikið vera ef ekki
hefur verið minnst á hann áður
í þessum pistlum, — hann selur
fyrir 4 miljónir króna á hverju
ári í hattaverzlun sinni. Við-
skiptavinirnir eru auðvitað ekki
allt kvikmyndastjörnur, en drúg-
ur skildingur rennur í vasa hans
daglega úr pyngjum hinna frægu
dísa. Hann veit líka hvað hverj-
um viðskiptavini hæfir, og gefur
þeim góð ráð, sem leiðbeiningar
þurfa og vilja þiggja.
Fyrir skömmu hafði blaðamað-
ur eða kona uppúr hattaranum
það leyndarmál hver af kvik-
myndastjömunum, sem við hann
skipta, hefði beztan „hattasmekk“.
Hann sagði að Gene Tiemey
væri slyngust að velja sér hatta,
sem henni færu vel, og næst
henni í því gengi Joan Crawford.
Flestar væru stjörnurnar lengi að
velja sér hatta, keyptu marga og
22 STJÖRNU*