Stjörnur - 01.02.1950, Side 32

Stjörnur - 01.02.1950, Side 32
Og hversu undrandi verður ekki vinkona okkar, er hún stígur úr lestinni í kvöldrökkrinu og sér tvær ungmeyjar standa með blómsveigum skreytt ljósaskilti, þar sem öðruhvoru kviknar og slokknar á mislitum perum, og hún les: „Velkomin til okkar, María!“ Ungur maður réttir henni hönd, það ætlar næstum því að líða yfir hana. Þetta er þó ekki sjálfur Robert Taylor? Ósköp er maðurinn líkur honum? í sömu svipan hefur hljómsveit upp dýrðlegan óð og blaðaljósmynd- ari skýst fram og tekur mynd af dömunni og herranum hennar. Það hefði ekki verið meira við- haft þótt hún hefði verið fræg- asta kvikmyndadís frá Holly- wood. Og hinn yndislegasti bíll bíður þeirra. Og þeim er ekið í sjálft ævintýralandið, hverfi í útjaðri borgarinnar, sem aðeins hefur verið reist í þessu augnamiði. Þar verður Robert Taylor því miður að kveðja. — Hann þarf að hverfa aftur til brautarstöðv- arinnar til að taka á móti nýjum Maríum, um það getur hann að sjálfsögðu ekki. Þetta eru fyrstu vonbrigði Maríu vinkonu okkar. En hún hefur ekki mikinn tíma til að hugsa um þetta. Ný undur mæta henni. Herbergið, sem henni er vísað til, er svo dýrð- legt, að það gefur ekkert ‘ eftir Þetta er nú Gary Cooper i eigin persónu því allra glæsilegasta, sem hún hefur séð í kvikmyndum — Og allt er eftir þessu. Þegar hún hefur jafnað sig eft- ir ferðalagið er einmitt kominn tími til að borða kvöldverð og Van Johnson kemur og spyr hvort sér megi veitast sú ánægja að fylgja henni til borðs. Og aldrei hefði hún trúað því, að henni ætti eftir að mæta slík dýrð: Veitingasalurinn er fullur af ungu fólki og hvert sem hún lítur eru þekkt Hollywood-andlit. Við eitt 32 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.