Bókatíðindi - 01.11.2024, Page 35
SVK
Frönsk framúrstefna
Sartre, Genet, Tardieu
Þýð: Vigdís Finnbogadóttir
Ritstj: Ásdís R. Magnúsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir
og Irma J. Erlingsdóttir
Frönsk framúrstefnuleikrit voru þýdd og sýnd á
Íslandi á 7 . áratug síðustu aldar af ungu leikhúsfólki .
Vigdís Finnbogadóttir var ein þeirra . Hér birtast
þrjár fyrstu þýðingar hennar úr frönsku: Læstar
dyr eftir Jean-Paul Sartre, Vinnukonurnar eftir Jean
Genet og Upplýsingaskrifstofan eftir Jean Tardieu .
Útgáfu verkanna fylgir inngangur ritstjóra .
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
KIL
Fyndin saga
Höf: Emily Henry
Þýð: Harpa Rún Kristjánsdóttir
Daphne hafði alltaf elskað hvernig Peter sagði söguna
þeirra . Hvernig þau kynntust á stormasömum
degi, urðu ástfangin og fluttu aftur í heimabæ
hans við vatnið til að hefja líf sitt saman . Hann
var rosalega góður í að segja hana . Eða þangað til
hann áttaði sig á því að hann væri í raun og veru
ástfanginn af Petru æskuvinkonu sinni .
453 bls .
Króníka
KIL
Gervigul
Höf: Rebecca F. Kuang
Þýð: Ingunn Snædal
Bókin hefur náð metsölu víða um heim
enda efni hennar vakið gríðarmikla athygli .
Þá sérstaklega vinkillinn sem snýr að
menningarnámi og samfélagsmiðlum .
352 bls .
Drápa
KIL
Guðrún
Höf: Brynja Svane
Þýð: Sigurlín Sveinbjarnardóttir
18 . aldar ættarsaga af Vestfjörðum þar sem sterkar
formæður eru í aðalhlutverki . Við sögu koma
Danakonungur sem fer í jarðakaup við ekkjuna
Guðrúnu, saltvinnsla í Djúpinu og lífsbarátta í óblíðri
náttúru . Bókin Guðrún er hin fyrsta í röð fjögurra
bóka höfundar um ættarsögu sína á Vestfjörðum .
204 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
RAF HLB
Gwendy
Höf: Stephen King og Richard Chizmar
Þýð: Arnór Hjartarson og Ísak Harðarson
Í þríleiknum um Gwendy sýnir Stephen King á
sér nýjar hliðar í samvinnu við Richard Chizmar
með stórbrotinni og spennandi sögu af einstakri
konu sem sýnir makalausan styrk þegar örlögin
leggja á hana þyngri byrðar en flestir stæðu
undir . Magnað verk í íslenskri þýðingu Ísaks
Harðarsonar og Arnórs Inga Hjartarsonar .
567 bls .
Storytel
KIL
Handfylli moldar
Höf: Evelyn Waugh
Þýð: Hjalti Þorleifsson
Eftir sjö ára hjónaband hefur hin fagra lafði Brenda
fengið nóg af lífinu á Hetton Abbey, gotneska
sveitasetrinu sem er stolt og yndi eiginmanns
hennar, Tonys . Hún fer að halda við hinn
grunnhyggna John Beaver, yfirgefur Tony og hverfur
á vit samkvæmislífsins í London . Óvænt örlög bíða
söguhetjanna í þessari óviðjafnanlegu skáldsögu .
362 bls .
Ugla
KIL RAF HLB
Heknevefurinn
Höf: Lars Mytting
Þýð: Jón St. Kristjánsson
Það er komin ný öld og langt síðan séra Kai
Schweigaard kom heim á Bútanga með Jehans,
nýfæddan son Astridar Hekne . Presturinn verður
heltekinn af því að finna fornan myndvefnað
samvöxnu tvíburasystranna í þeirri von að geta
sameinað kirkjuklukkurnar á ný . . . Sjálfstætt framhald
Systraklukknanna sem notið hefur mikilla vinsælda .
464 bls .
Forlagið - Mál og menning
KIL RAF
Herbergi Giovanni
Höf: James Baldwin
Þýð: Þorvaldur Kristinsson
Á meðan David bíður þess að unnusta hans snúi
heim úr langferð kynnist hann Giovanni . Í óhrjálegu
herbergi í úthverfi Parísar upplifa þeir í senn ást
og frelsi, skömm og ótta . Í kjölfarið þarf David að
ákveða hvort hann gangi að kröfum samfélagsins eða
horfist í augu við sjálfan sig . Valin ein af hundrað
áhrifamestu skáldsögum heims af BBC .
239 bls .
Forlagið - Mál og menning
KIL RAF
Hildur
Höf: Satu Rämö
Þýð: Erla Elíasdóttir Völudóttir
Snjóflóð fellur á sumarhúsabyggð við Ísafjörð og
Hildur og félagar hennar í lögreglunni mæta á staðinn .
Í rústunum finna þau mann sem hefur verið myrtur
– í friðsælum bænum er eitthvað kynlegt á seyði .
Satu Rämö er finnsk en hefur búið lengi á Íslandi .
Spennusögur hennar um Hildi eru orðnar þrjár og
hafa slegið rækilega í gegn í Finnlandi og víðar .
375 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
KIL RAF HLB
Hjartabein
Höf: Colleen Hoover
Þýð: Sunna Dís Másdóttir
Þegar leigusali Beyah hendir henni út neyðist hún
til að leita á náðir föður síns sem býr við allsnægtir í
sumarleyfisparadís ríka fólksins í Texas . Þar kynnist
hún hinum myndarlega og forríka Samson sem
Beyah er sannfærð um að hún eigi fátt sameiginlegt
með . Undir ríkmannlegu yfirborði hans glittir
þó í eitthvað kunnuglegt, eitthvað brotið .
Björt bókaútgáfa - Bókabeitan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 35GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÞÝDD