Bókatíðindi - 01.11.2024, Síða 42
Ljóð og leikhandrit
IB
Aðlögun
Höf: Þórdís Gísladóttir
Sjötta ljóðabók Þórdísar Gísladóttur . Aðlögun nær til
þeirra eiginleika sem hafa þróast hjá lífverum og auka
möguleika þeirra á að lifa af og fjölga sér í tilteknu
umhverfi . Aðlögun getur tekið á sig ýmsar myndir,
svo sem líkamlegar breytingar, hegðunarbreytingar
eða breytt mynstur hringrásar lífsins .
60 bls .
Benedikt bókaútgáfa
KIL
Á meðan við deyjum ekki
Höf: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Lífsreynslan er leiðarstefið í þessari fallegu og hlýju
ljóðabók sem tekst þar að auki á við nokkrar áleitnustu
spurningar lífsins . Náttúran er heldur ekki langt undan
eins og gjarnan áður í bókum höfundar, svo og nálægð
tímans í töfrandi skáldskap og einstakri orðsnilld .
96 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Árniður að norðan
Höf: Pálmi Ragnar Pétursson
Langflest ljóðanna í bókinni eru prósar sem
sumir hverjir hafa dvalið með höfundi lengi . Hér
fléttast saman fegurð, ást, sorg og væntumþykja .
Ljóðin venslast hvert við annað á ýmsan hátt í
dúr og moll . Það er stutt í húmorinn og höfundur
gerir upp þessi 60 ár sem hann hefur bráðum
lifað á einstakan hátt . Þessi bók er perla .
74 bls .
Sögur útgáfa
KIL
Átthagafræði
Höf: Kristín Þóra Harðardóttir
Ég geng um dimman skóg
mosagróður og elfting
þekja skógarbotninn
langar að leggjast í mosann
horfa upp í trjákrónurnar
og minnast hamingjunnar .
Höfundur horfir til átthaganna og þess hvernig þeir
hafa mótað viðhorf hennar og viðbrögð í lífinu .
64 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Blákápa
Höf: Bragi Björnsson
Höfundinn, sem kenndur er við Surtsstaði, má
telja meðal snjöllustu austfirskra ljóðskálda . Hann
var hógvær maður, hirti lítið um að koma ljóðum
sínum á prent en gekk frá þeim hreinrituðum . Bókin
geymir úrval úr þessum fjársjóði . Áður hafa komið
út eftir hann bækurnar Agnir, Laðar nótt til ljóða
og Leiðir hugann seiður sem kom út í fyrra .
272 bls .
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi
KIL
Einurð
Höf: Draumey Aradóttir
Einurð er sjöunda bók höfundar . Lesanda er hér boðið
í ljóðför um hugarheim barns – og síðar fullorðins
einstaklings – sem ávarpar móður sína allt frá þeim
degi og þeirri nóttu sem eitt líf slokknar og annað
kviknar . Þar sem form og formleysi mætast .
72 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
Eitt andartak - ljóð
Höf: Halla Jónsdóttir
Höfundur tekst á við tilvistarspurningar og
tilfinningalegar upplifanir þar sem vonin og þakklætið
skipa öndvegi . Höfundur hefur starfað um áratugaskeið
við fræðslumál innan skólakerfisins, en síðast sem
aðjúnkt á menntavísindasviði Háskóla Íslands .
48 bls .
Skálholtsútgáfan - Kirkjuhúsið
SVK
Ég er það sem ég sef
Höf: Svikaskáld
Fimmta bók höfundakollektífsins Svikaskálda er
galsafengin og margræð ljóðabók um bugun og nýjar
víddir, stiga sem ögra náttúrulögmálum, konur sem
hringlar í og niðurföll sem soga til sín lífið sjálft .
Svikaskáld eru Fríða Ísberg, Melkorka Ólafsdóttir,
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Másdóttir,
Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís Helgadóttir .
81 bls .
Forlagið - Mál og menning
SVK
Ég hugsa mig
Nokkur ljóðaljóð og sagnir
Höf: Anton Helgi Jónsson
Hér er á ferðinni ellefta bók skáldsins Antons Helga
sem kemur út á hálfrar aldar höfundarafmæli hans .
Þetta er vegleg og falleg ljóðabók með ríkulegum
myndskreytingum í lit eftir listakonuna Sossu,
gerðum sérstaklega fyrir þessa útgáfu .
93 bls .
Forlagið - Mál og menning
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa42
Ljóð og leikhandrit
Ljóð og leikhandrit