Bókatíðindi - 01.11.2024, Side 44
KIL
Hljóð
Höf: Sigrún Erla Hákonardóttir
Ljóð Sigrúnar Erlu Hákonardóttur eru oftast stutt
og gagnorð, hvort sem hún yrkir hefðbundið eða
í frjálsu formi . Ljóðmálið er frjálst og leikandi,
minnir stundum á tónlist, myndrænt og fallegt,
og á bakvið orðin skynjar lesandinn sterkar
tilfinningar, von, þrá, söknuð og ást .
106 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Hvað verður fegra fundið?
Úrval kveðskapar sr. Hallgríms Péturssonar
Höf: Hallgrímur Pétursson
Ritstj: Margrét Eggertsdóttir
Úrval þess fjölbreytta kveðskapar sem liggur eftir
sr . Hallgrím Pétursson, helsta skáld 17 . aldar á
Íslandi . Hann er þekktastur fyrir Passíusálma sína
en orti kvæði og sálma af öllu tagi . Hér má til dæmis
finna heilræði, bænavers, ádeilu og náttúrulýsingar,
auk þekktra erinda úr Passíusálmunum .
200 bls .
Skálholtsútgáfan - Kirkjuhúsið
IB
Jarðljós
Höf: Gerður Kristný
Gerður Kristný nýtur aðdáunar fyrir orðsnilld sína
langt út fyrir landsteinana og við ljóð hennar hafa
innlendir og erlendir listamenn samið tón- og leikverk .
Hún hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir
skrif sín, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin .
Jarðljós er tíunda ljóðabók hennar .
91 bls .
Forlagið - Mál og menning
SVK
Kallfæri
Höf: Guðrún Hannesdóttir
Hér er ort af stakti snilld sem birtist í einstakri
myndvísi, næmum skilningi og hárf ínni ádeilu á
samtímann . Lífsspeki kallast á við lífsgleði . Meitlaður
skáldskapur einsog hann gerist bestur . Kallfæri er
tíunda bók Guðrúnar, sem hefur hlotið Ljóðstaf Jóns úr
Vör og Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir verk sín .
63 bls .
Dimma
IB
Kærleikur og friður
Lifi lífið!
Höf: Sigurbjörn Þorkelsson
100 trúarljóð höfundar ásamt lögum sem samin
hafa verið við mörg þeirra, í kórútsetningum .
Ljóðin eru einlæg og kærleiksrík, nærandi og
huggandi . 55 ljóðanna hafa birst yfir 700 sinnum í
minningargreinum í Morgunblaðinu . Höfundur flestra
laganna er Jóhann Helgason tónlistarmaður .
205 bls .
Skálholtsútgáfan - Kirkjuhúsið
IB
Limrur á servíettum
Höf: Þorsteinn Valdimarsson
Þorsteinn Valdimarsson, skáld, tónlistarmaður og
kennari (1918–1977), samdi fyrstu ljóðabók sem
kom út hér á landi og innihélt eingöngu ljóð sem
byggðust á bragarhætti sem hann nefndi limru .
Hann var þannig einn af frumkvöðlum íslenskrar
limrugerðar og þeim sem gerðu bragarháttinn að
lausavísnaformi við hlið tækifærisstökunnar .
112 bls .
Skrudda
KIL
Líf - Uppistand augnabliksins
Höf: Kjartan Ólafsson
Ljóðin í bókinni fjalla um lífið, tímann og tilveruna
með tilvísun í atburði líðandi stundar og liðinna
tíma . Um er að ræða fyrstu ljóðabók höfundar en
ljóð eftir Kjartan hafa ekki birst opinberlega áður
fyrir utan ljóðið við lagið LaLíf sem gefið var út
af hljómsveitinni SmartBand á sínum tíma .
43 bls .
ErkiBók
IB
Ljáðu mér rödd
Ljóðaþríleikur
Höf: Kjell Espmark
Þýð: Njörður P. Njarðvík
Magnaður ljóðaþríleikur eftir eitt virtasta skáld Svía,
Kjell Espmark, sem er Íslendingum að góðu kunnur .
Í bókinni eru ljóðabækurnar Vetrarbraut
(2007), Innri víðátta (2014) og Fjöldi votta
(2020) þar sem öll bestu höfundareinkenni
Espmarks sem ljóðskálds njóta sín til fulls .
336 bls .
Ugla
SVK
Ljóðasafn I
Höf: Gyrðir Elíasson
Fimm fyrstu ljóðabækur Gyrðis, sem hafa verið
ófáanlegar um áratuga skeið, eru hér saman komnar
í einu bindi og marka upphafið að vönduðum
endurútgáfum verka skáldsins . Hér birtast Svarthvít
axlabönd, Tvíbreitt (svig)rúm, Einskonar höfuð
lausn, Bakvið maríuglerið og Blindfugl/Svartflug.
Ómissandi í safn allra bókaunnenda .
280 bls .
Dimma
KIL
Milli fjalla
Höf: Jón Hjörleifur Stefánsson
Jón Hjörleifur er guðfræðingur og hefur löngum
verið búsettur erlendis . Milli fjalla er fyrsta ljóðabók
hans og inniheldur trúarlegan kveðskap sem fjallar
um víddir trúarlífsins – myrkar og bjartar .
72 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa44
Ljóð og leikhandrit