Bókatíðindi - 01.11.2024, Blaðsíða 54
IB
Fangar Breta
Höf: Sindri Freysson
Vitað er með vissu um 47 Íslendinga sem Bretar
handtóku á stríðsárunum frá 1940-1945 og vistuðu
í fangelsum í Englandi . Þeir sátu innilokaðir í
Bretlandi allt frá nokkrum mánuðum til tæplega
þriggja og hálfs árs . Enginn fanganna fékk að
leita sér lagalegrar aðstoðar eða verja sig fyrir
dómstólum . Hér birtist saga þeirra .
344 bls .
Sögur útgáfa
SVK RAF
Fararefni
Þing um Þorstein frá Hamri
Ritstj: Ástráður Eysteinsson
Hér fjalla ellefu manns, skáld og fræðafólk, um verk
Þorsteins frá Hamri og viðfangsefnin eru fjölbreytt .
Greinasafnið varð til í framhaldi af málþingi sem efnt
var til haustið 2022 um skáldið og verk hans . Ástráður
Eysteinsson ritstýrir safninu og skrifar inngang .
192 bls .
Forlagið - Mál og menning
SVK
Íslensk heimspeki
Fingraför spekinnar
Kaflar úr sögu íslenskrar heimspeki á miðöldum
Höf: Gunnar Harðarson
Í bókinni er gerð tilraun til að nálgast þá hugmynd
um heimspeki sem íslenskir lærdómsmenn
kynnu að hafa aðhyllst á miðöldum . Einnig er
athyglinni beint að heimspekilegum rökfærslum
og siðfræðilegum hugtökum . Í lokin er gefið yfirlit
um rannsóknir á siðfræði Íslendingasagna .
154 bls .
Hið íslenska bókmenntafélag
SVK
Fléttur VII
Hinsegin Ísland í alþjóðlegu samhengi
Ritstj: Ásta Kristín Benediktsdóttir og Elín Björk
Jóhannsdóttir
Hér birtast tíu greinar á sviði jafnréttis- og hinsegin
rannsókna þar sem ýmsar hliðar hinsegin málefna á
Íslandi eru skoðaðar í alþjóðlegu samhengi . Í bókinni
er fjallað um réttindabaráttu, bakslag, hindranir og
áskoranir í lífi hinsegin fólks á ólíkum tímum og
einnig rýnt í tungumálið, listir og bókmenntir .
Háskólaútgáfan
SVK
Ritsafn Sagnfræðistofnunar 45
Fornar Skálholtsskræður
Úr sögu nokkurra skinnhandrita frá Skálholti
Höf: Sveinbjörn Rafnsson
Ritstj: Már Jónsson
Fornar Skálholtsskræður er um sögu þriggja
skinnhandrita sem voru við biskupsstólinn í Skálholti .
Fyrst er minnisbók sem biskupar höfðu meðferðis
í vísitasíuferðum um 1500 . Þá er fjallað um gamla
námsbók úr prestaskóla Skálholts, þar sem er þýðing
á íslensku úr klassískum kanónískum rétti .
Háskólaútgáfan
KIL
Fornihvammur í Norðurárdal
Höf: María Björg Gunnarsdóttir
Fornihvammur er sögufrægur áningarstaður á
leiðinni yfir Holtavörðuheiði . Saga þessa merka
staðar að fornu og nýju er hér rakin allt til ársins
1977 þegar byggð lagðist af . Höfundur ólst upp
í Fornahvammi og þekkir þar vel til .
200 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Fólk og flakk
Sagnakvöld af baksviði stjórnmálanna
Höf: Steingrímur J. Sigfússon
Á ferðum sínum um landið kynntist Steingrímur J .
Sigfússon ótölulegum fjölda fólks, jafnt samherjum
sem andstæðingum í pólitík . Hér rifjar hann upp
eftirminnilegar sögur frá þessum ferðum og af Alþingi
en allar einkennast þær af hlýju og húmor .
208 bls .
Veröld
SVK
Frasabókin – ný og endurbætt
Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri
Höf: Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
Ný og endurbætt frasabók með ferskum og
bráðskemmtilegum frösum . Yfir tólf hundruð
frasar, snjallyrði, orðtök og slanguryrði sem geta
glatt vinina, afa og ömmu, frænda og frænku,
mágkonu og samstarfsfélaga . Skemmtileg,
fyndin og fræðandi bók sem kemur að góðum
notum hvar og hvenær sem er .
228 bls .
Sögur útgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa54
Fræðirit, frásagnir og handbækur
SAMHYGGÐ OG SKILNINGUR.
Lestur leiðir okkur í spor
annarra og eflir samkennd
og tilfinningagreind.