Bókatíðindi - 01.11.2024, Blaðsíða 59
SVK
Sjávarútvegur og eldi
Höf: Ásta Dís Óladóttir og Ágúst Einarsson
Í bókinni er fjallað um alla þætti sjávarútvegs,
allt frá veiðum til sölu auk grunnþátta fiskeldis
og áhrifum þessara atvinnugreina á samfélagið
og framleiðslu . Umhverfis- og þróunarmál eru
skoðuð auk þess sem stjórnun fiskveiða hérlendis
og erlendis er lýst . Þá er einnig fjallað um
alþjóðavæðingu, nýsköpun og tækifæri .
649 bls .
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Skálholt: Excavations of a Bishop’s Residence
and School c.1650-1790.
Volume 2: The Artefacts.
Höf: Gavin Lucas og Mjöll Snæsdóttir
Skálholt er einn merkasti sögustaður á Íslandi .
Þar var fyrst settur biskupsstóll og staðurinn var
miðstöð menningar, stjórnsýslu og kirkjustjórnar
í meira en 800 ár . Þetta er annað bindið af þremur
sem fjalla um niðurstöður fornleifarannsókna sem
fram fóru í Skálholti milli 2002 og 2007 .
366 bls .
Fornleifastofnun Íslands ses
IB
Spánarflakk
Höf: Ólafur Halldórsson
Í þessari bók er flakkað um Spán í tíma og rúmi .
Frásögnin er persónuleg upplifun ferðalangs sem
hefur heimsótt marga staði þessa mikilfenglega lands
og heillast af sögu þess og íbúum . Leiðin liggur frá
sólbökuðum ströndum meginlands og eyja til harðbýlla
svæða við rætur Pýreneafjalla og hásléttu Kastilíu .
174 bls .
Óðinsauga útgáfa
IB
Spegill íslenskrar fyndni
Höf: Þórunn Valdimarsdóttir
Fræðileg úttekt Þórunnar á ritinu Íslensk fyndni
er heilt yfir drepfyndin greining á meintum
gamanmálum og stórmerkileg rannsókn á íslenskri
menningu . Þórunn Valdimarsdóttir sagnfræðingur
er margverðlaunaður rithöfundur og fer hér á
kostum í stílfimi eins og henni er einni lagið .
168 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
Svarta ekkjan
Sönn saga af ömmunni flissandi, Nannie Doss
Höf: Ryan Green
Þýð: Ragnar Hauksson
Áhrifamikil og hrollvekjandi frásögn af
einum óhugnanlegasta fjöldamorðingja í sögu
Bandaríkjanna .
Þegar Charlie Briggs kom heim til sín einn daginn
í Alabama árið 1927 voru tvær dætur hans dánar .
Læknir úrskurðaði að matareitrun hefði leitt þær til
dauða . Engin krufning fór fram . En Charlie grunaði
konu sína, Nannie, um að hafa drepið þær .
179 bls .
Ugla
IB
Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar
konur
Hjátrú af ýmsum toga
Höf: Símon Jón Jóhannsson
Hér er fjallað um hjátrú af ýmsum toga, bæði innlenda
og erlenda, gamalgróna og nýja . Leitast er við að setja
efnið fram á skýran og einfaldan hátt með því meðal
annars að flokka hjátrúna í efnisflokka svo sem: Dýr,
tíminn, líkaminn, ástir og kynlíf, matur og drykkur,
athafnir, börn, hlutir, sjúkdómar og dauði .
278 bls .
Bókaútgáfan Hólar
IB
Svipur brotanna
Líf og list Bjarna Thorarensen
Höf: Þórir Óskarsson
Bjarni Thorarensen (1786–1841) er jafnan talinn til
höfuðskálda Íslendinga . Einkum er hans minnst sem
frumkvöðuls innlendrar rómantíkur, skálds sem orti
jafnt kraftmikil ættjarðar- og orustukvæði, eldheit
ástarljóð, lofsöngva til norræns vetrar og minningarljóð
um fólk sem átti ekki samleið með fjöldanum .
486 bls .
Hið íslenska bókmenntafélag
SVK
Rit Árnsstofnunar nr.115
Söngbók séra Ólafs Jónssonar á Söndum
: Þórunn Sigurðardóttir, Margrét Eggertsdóttir,
Johnny F. Lindholm og Árni Heimir Ingólfsson
Ritstj: Jóhannes B. Sigtryggsson
Höf: Ólafur Jónsson á Söndum
Kvæði með nótum ætluð bæði fræðimönnum og
áhugafólki um tónlist og sögu íslenskrar tónlistar .
335 bls .
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
IB
Söngur ljóðstafanna
Höf: Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Í bókinni er safn greina um bragfræði, einkum
stuðlasetningu . Rýnt er í ástæðurnar fyrir því
að sérhljóðin stuðla hvert við annað, fjallað um
ljóðstafinn s og flækjurnar kringum hann, gerð
grein fyrir því hvernig stuðlunin skiptist niður á
orð eftir því hvaða orðflokki þau tilheyra, sýnt fram
á að stundum er hægt að aldursgreina ljóð .
239 bls .
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Ritröð Árnastofnunar nr. 116
Tíðfordríf Jóns lærða Guðmundssonar I–II
: Einar G. Pétursson
Höf: Jón lærði Guðmundsson
Tíðfordríf Jóns Guðmundssonar lærða er í
tveimur bindum . Fyrra bindi er inngangur ásamt
heimildaskrá, handritaskrá og nafnaskrá . Seinna bindi
er texti Tíðfordrífs ásamt orðaskrá og nafnaskrá .
Aðeins bútar hafa verið prentaðir áður .
488 bls .
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 59GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræðirit, frásagnir og handbækur