Bókatíðindi - 01.11.2024, Side 65
Hannyrðir og
matreiðsla
SVK
Fjórar vikur – fjögur ráð
Aðferð glúkósagyðjunnar til að jafna blóðsykurinn
Höf: Jessie Inchauspé
Þýð: Nanna Rögnvaldardóttir
Breyttu lífi þínu á aðeins fjórum vikum! Ný bók eftir
höfund Blóðsykursbyltingarinnar sem sló í gegn
2023 . Hún sýnir hvernig hægt er að hafa áhrif á
blóðsykurinn til hins betra og bæta bæði líkamlega
og andlega heilsu . Meira en hundrað auðveldar
og girnilegar uppskriftir og ótal dæmi um hvernig
best er að beita hollráðum Glúkósagyðjunnar .
288 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Fræ
Höf: Arna Engilbertsdóttir
Myndir: Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
Fræ hefur að geyma rúmlega hundrað fjölbreyttar
uppskriftir að gómsætum réttum úr plönturíkinu .
Uppskriftirnar á síðum bókarinnar eiga það
sameiginlegt að vera litríkar og bragðmiklar
og það er á allra færi að reiða þær fram .
304 bls .
Salka
IB
Heklað skref fyrir skref
Höf: Sally Harding
Þýð: María Þorgeirsdóttir og Sigrún
Hermannsdóttir
20 einfaldar uppskriftir og yfir 100 aðferðir og
heklmunstur . Kennd eru fjölmörg grundvallaratriði
í hekli og fjallað um aðferðir, garn, áhöld og
fleira . Hvert skref er útskýrt og skýringarmyndir
sýna rétta handbragðið . Ómissandi bók fyrir
alla sem langar til að læra að hekla!
224 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Ljúflingar – uppáhaldsföt á yngstu börnin
Höf: Hanne Andreassen Hjelmås og Torunn
Steinsland
Þýð: Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
Dásamlegar prjónaflíkur handa litlu krílunum .
Í bókinni eru 70 uppskriftir að prjónaflíkum
og fylgihlutum handa börnum frá fæðingu
og upp í fjögurra ára . Hér er að finna úrval
af fallegum heimferðarsettum, heilgöllum,
teppum, leikföngum og fleiru .
186 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
SVK
Skólapeysur
Höf: Prjónafjelagið
Myndir: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Hér eru tólf uppskriftir að heilum peysum fyrir sex
til fjórtán ára börn; fljótlegum, einlitum peysum,
peysum með útprjóni og peysum með klassískum
munsturbekkjum . Þetta er fjórða bókin frá
Prjónafjelaginu sem hefur áður sent frá sér vinsælar
prjónabækur með uppskriftum fyrir yngri börn .
80 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Stóra brauðtertubókin
Höf: Ýmsir höfundar
Þegar góða veislu gjöra skal er alltaf pláss
fyrir brauðtertu . Hún er órjúfanlegur hluti af
matarmenningu okkar og hefur verið kölluð
þjóðarréttur Íslendinga . Hér má finna fjölda girnilegra
brauðtertuuppskrifta, einföld ráð, viðtöl við einlæga
aðdáendur brauðtertunnar . Allt sem þú vissir ekki að
þú þyrftir að vita um brauðtertur – og meira til .
224 bls .
Sögur útgáfa
IB
Ullaræði 2
Höf: Heli Nikula
Þýð: Guðrún Hannele Henttinen
Finnski hönnuðurinn Heli Nikula sló í gegn
fyrir örfáum árum með peysuuppskrift úr
íslenskum lopa . Hún hannar undir nafninu
Villahullu, sem þýðir eiginlega ullaræði, og er
orðið þekkt nafn um allan heim . Aðdáendum
íslenska lopans hefur fjölgað gífurlega í kjölfarið
svo úr hefur orðið mikið ullaræði .
289 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Þetta verður veisla
Höf: Gabríel Kristinn Bjarnason
Haltu matarveislu heima - án mikillar fyrirhafnar .
Matreiðslubók fyrir þá sem finnst gaman að
bjóða vinum og fjölskyldu heim í matarupplifun
en vilja ekki hafa alltof mikið fyrir því!
96 bls .
Edda útgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 65GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Hannyrðir og matreiðsla
Hannyrðir og matreiðsla