Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Blaðsíða 19

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Blaðsíða 19
það sennilega mun meira um árangur en árstími sáningar eða sáðmagn. Fræ birkisins eru smá og hafa litla forðanæringu. Fræplöntunum vegnar því illa í samkeppni við annan gróður og einnig á algjörum berangri. Fræinu ber því að sá í hálf- gróið land með eyðum í gróðursverði, t.d. hálf- gróin holt, hraun og mela eða gamlar landgræðslu- sáningar þar sem graslag er tekið að gisna. í slíku landi er árangurs að vænta. Fræinu skal alls ekki sá beint í algróið land, svo sem graslendi, móa eða mosaþembur og ekki í ógróna sandjörð, vikra eða flög. Skapa má skilyrði fyrir sáningu í gróið land með því að rnynda eyður í gróðurlag, t.d. með því að rista ofan af eða nota jarðvinnslu- tæki eins og lýst er hér að framan. Einnig getur komið til álita að undirbúa land með því að brenna sinu og mosalag, eða með því að ofbeita það um tíma með hrossum, en við það myndast sár í gróðurþekjuna (Sigurður H. Magnússon 1989). Árstími sáningar er mikilvægur þáttur, en skiptir sennilega ekki sköpum. Vænlegast er að sá síðla hausts, en ágætur árangur getur einnig orðið af vorsáningum, eins og dæmin sýna. Dragist sán- ing fram á sumar verða kímplönturnar mjög smá- ar og illa búnar undir veturinn. Er því mikilla affalla að vænta. Rannsóknir benda til að þetta komi ekki að mikilli sök þar eð hluti fræja sem sáð er að sumri spírar ekki fyrr en á næsta vori. Fræmagn ber að athuga við sáningu. Sennilega hættir flestum til að ofnota fræið og sá fullþétt. Ástæða er til að stilla fræmagninu í hóf og reyna frekar að konia því á sem flesta staði. Sé tekið mið af sáðmagni sem notað er við birkisáningar í gróðrarstöðvum, mætti miða við að nota um hálft kg af birkifræi á hvern hektara lands. Erfitt getur þó reynst að koma við nákvæmni og er ástæðu- laust að leggja um of áherslu á sáðmagnsþáttinn. Sáningaraðferð er einföld, en fræinu má handsá yfir þau svæði sem talin eru búa yfir hagstæðum spírunar- og uppvaxtarskilyrðum. Gott er að þjappa jarðveginn með fæti eftir sáningu eða valta hann, verði því við komið. Jarðvegi má alls ekki róta yfir fræið. Sáning birkifræs með öðru fræi eða áburði getur komið til álita, og sama er að segja um húðun þess. Þar sem land er nær gróðurlaust, svo sem á illa grónum melum eða í moldarflögum, má vænta árangurs af sáningu birkifræs, sé því blandað við grasfræ og tilbúinn áburð. í fræverk- unarstöðinni í Gunnarsholti er aðstaða til hreins- unar birkifræs og húðunar. Húðað fræ er þægilegt í meðförum og auðveldara er að sá því með tækjum en óhúðuðu fræi. Húðun fræsins er þó engin forsenda þess að árangur náist við sáningar á víðavangi og er alls ekki nauðsynleg ef ætlunin er að handsá fræi í land. 3. Eftirlit Ef grannt er skoðað má greina árangur af sán- ingu birkifræs á fyrsta ári, en til þess verða menn að leggjast á fjóra fætur og rýna í sáðblettina. Birkiplönturnar verða ekki mj ög áberandi fyrr en þremur til fjórum árum eftir sáningu. Ef land er mjög rýrt og sá gróður lítill er veitir birkinu sam- keppni. getur það verið til bóta að dreifa örlitlu af tilbúnum áburði á sáðblettina þar sem birkið er að komast á legg. Nauðsynlegt er að halda landi, sem birki hefur verið sáð í, friðuðu fyrir beit. ÞAKKARORÐ Rannsóknir þær sem hér er fjallað um hafa ver- ið styrktar af Vísindasjóði og Landgræðslu- og landverndaráætlun III 1987-1991. Landgræðsla ríkisins hefur lagt þeim mikið lið og einnig hafa þær notið stuðnings Skógræktar ríkisins. Sturla Friðriksson og Jón Guðmundsson lásu handrit að greininni. Höfundar færa þessum aðilum bestu þakkir. HEIMILDIR Andrés Arnalds, 1989. Endurheimt birkiskóga. Grœðum ísland. Landgrœðslan 1988. Árbók II, bls. 89-96. Ágúst Árnason, 1989. Sáning birkis á víðavangi. Ársrit Skógrœktarfélags íslands, bls. 112-113. Eggert Konráðsson, 1936. Birkisáðreitir í Vatns- dal. Búfrœðingurinn, og endurbirt í Arsriti Skógrœktarfélags íslands 1989, bls. 108-110. Hákon Bjamason, 1979. Birkilundurinn í Hauka- dal. Ársrit Skógræktarfélags íslands, bls. 48- 50. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.