Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Side 42
1. Lengd tímabils frá því að kostað er til skóg-
ræktar og þar til afurðir skógarins eru seldar.
2. Stofnkostnaður skógræktar.
3. Verð afurða.
4. Kostnaður við skógarhögg.
5. Kostnaður við hirðingu skógar.
Hægt er að líta á hagkvæmni nytjaskógræktar á
íslandi frá tveimur hliðum:
Frá sjónarhóli ríkisvalds sem greiðir stofn-
kostnað, þ.e. þjóðhagslega hagkvæmni. Par
vegur arðsemi skógræktarinnar þungt en aðrir
þættir hafa einnig mikil áhrif, s. s. stuðningur við
aðrar greinar landbúnaðar, áhrif á framleiðslu
annarra landbúnaðarafurða, sparnaður á gjaid-
eyri, byggða- og umhverfissjónarmið.
Frá sjónarhóli iandeiganda hlýtur hagkvæmni
skógræktar að vera mikil þar sem hann sleppur að
meiri hluta við að greiða stofnkostnað fram-
kvæmda. Á móti kemur að hann verður að meta
hvort og hve mikið skógræktin takmarki eða hafi
í för með sér aukinn kostnað við annan búrekst-
ur. Það sem líklega hefur einna mest letjandi
áhrif á landeigandann er hve iangur tími líður þar
til skógurinn fer að gefa af sér tekjur í einhverjum
mæli. Þeir sem taka ákvörðun um að leggja út í
nytjaskógrækt verða komnir undir græna torfu
áður en skógurinn gefur af sér verulegar tekjur.
Aftur á móti má líta þannig á, að strax þegar
byrjað er að planta skógi eykst verðmæti jarðar-
innar sem fjárfestingunni nemur. Eigandinn
stendur uppi með verðmætari jörð þó að afurðir
skógarins láti á sér standa.
HUGLEIÐINGAR UM MÖGULEIKA
Á SÖLU AFURÐA
Það er sjálfsagt álit margra að nokkuð ótíma-
bært sé að fara að velta fyrir sér möguleikum á
sölu afurða úr nytj askógi, sem falla ekki til fyrr en
eftir tugi ára. Það er þó afar mikilvægt að gera sér
einhverja grein fyrir því hvort markaður sé fyrir
þær afurðir sem á að framleiða - í þessu dæmi
trjávið.
Erfitt er að spá fyrir hvernig markaður fyrir
trjávið á eftir að þróast. Sé litið á sögu trjáviðar-
framleiðslu hefur verð á trjáviði hækkað að með-
altali um 1% á ári síðustu öldina sem bendir til
þess að ekkert lát sé á eftirspurn eftir viðarafurð-
um. Það er eindregið álit færustu sérfræðinga í
markaðsmálum þessara afurða.
Helstu viðarafurðir skógræktar nú á dögum
eru:
1. Borðviður. Hann er verðmætastur þeirra
viðarafurða, sem hér eru taldar upp. Gerðar eru
miklar kröfur til gæða trjábolanna. Þeir þurfa
t. d. að vera langir, nægilegagildirog beinir. Verð
er breytilegt eftir gæðum og trjátegundum.
Borðviður fellur ekki til í verulegum mæli fyrr
en við lokahögg. Vinnsla er einföld og krefst
lítillar fjárfestingar. Ef gert er ráð fyrir að rækt-
aður verði nytjaskógur á 5000 ha á Eyjafjarðar-
svæðinu, árlegur meðalvöxtur verði 3 rúmmetrar
og þar af 30% borðviður, falla til um 4500 rúm-
metrar af borðviði á ári sem er mun meira viðar-
magn en þarf til að standa undir rekstri lítillar
sögunarmyllu. Minnsta gerð sögunarmyllu
(,,bændamylla“) getur afkastað allt að 10-12 m3 á
dag eða um 2400-2900 m3 á ári. í Noregi er stofn-
kostnaður flytjanlegrar „bændamyllu" um 2,6
milljónir kr. Slík sögunarmylla er talin hagkvæm
þó að hún sé aðeins í notkun í 20 daga á ári hverju
(Nagoda 1988).
2. Beðmis- og spónaplötuviður. Litlar kröfur
eru gerðar til gæða trjábolsins en viðurinn þarf að
vera ferskur og óskemmdur. Verð er misjafnt
milli tegunda en alltaf mun lægra en á borðviði.
Beðmisverksmiðjur eru mjög stórar og óhugs-
andi er að slík verksmiðja verði reist á Islandi.
Spónaplötuverksmiðjur eru minni. Beðmisvið
verður því að selja úr landi.
Á engu öðru nytjaskógasvæði á landinu er jafn-
stutt í hafskipahöfn og á Eyjafjarðarsvæðinu
þannig að fiutningskostnaður, sem oft er tak-
markandi þáttur við sölu á ódýrari viðarafurðum,
verður í lágmarki. 5000 ha nytjaskógur gæti gefið
af sér 9000 rúmmetra af beðmisviði árlega, ef
miðað er við að 60% skógarins nýtist sem beðm-
isviður. Þar að auki væri hægt að bæta við
afskurði úr borðviðarframleiðslunni sem er um
30% eða 1400 rúmmetrar. Þetta er mjög hæfilegt
magn í 1 til 2 stóra skipsfarma.
3. Iðnviður. Kröfur til viðargæða eru í lág-
marki og verð lægra en á beðmisviði. Oftast er
notaður viður af tegundum sem ekki er hægt að
40
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990