Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Blaðsíða 86
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, gróðursetur
fyrstu plöntuna í landgræðsluskógaátakinu. Mynd: Sig.
Blöndal, 10-05-90.
manns en eru sjálfsagt fleiri. Mér er sagt að slíkt
eigi sér enga hliðstæðu nú á dögum hjá öðrum
þjóðum.
En hér sést hvaða hug íslenska þjóðin ber til
landsins síns og gróðurríkis þess og hver vilji
hennar er í þessum efnum.
Á það skal ráðamönnum bent.
Átaksárið hófst með athöfn að Kjarvals-
stöðum í byrjun janúar síðastliðins. í mars var
haldinn sérstakur fræðslufundur með fulltrúum
skógræktarfélaganna og samstarfsaðila. Mörg
erindi voru flutt, leiðbeiningar voru gefnar og
spurningum svarað.
Gerðir voru samningar um framleiðslu skógar-
plantna við garðyrkjubændur í Árnessýslu sam-
kvæmt útboði, með það í huga að afhentar yrðu
plöntur endurgjaldslaust til gróðursetningar í
hina völdu reiti. Jafnframt var unnið að leigu-
samningum við umráðamenn landsins.
í upphafi var áætlað að gróðursettar yrðu allt
að 1,5 milljónir plantna en áföll urðu í framleiðsl-
unni svo hluti plantnanna stóðst ekki staðal. En
nú í haust er tilbúin hjá þessum sömu garðyrkju-
bændum viðbót sem nentur afföllunum.
Þess skal getið í framhaldi þessa að fram-
kvæmdanefndin hefur gert nýja samninga sam-
kvæmt útboði um plöntuframleiðslu fyrir árið
1991. Þar eiga hlut að máli framleiðendur á Reykja-
víkursvæðinu og notaðir verða bakkar með stærri
pottum en fyrra árið.
Skriðurinn jókst jafnt og þétt eftir því sem leið
á árið við undirbúningsstörf. Öflug fjáröflun var
skipulögð og leitað nýrra leiða. Haldið var uppi
áróðri og kynningu eins og kostur var. Staðið var
að fræðsluþáttum í sjónvarpi og undirbúin
merkjasala (græna greinin) um allt land.
Stöð 2 hélt úti samfelldri dagskrá heilt kvöld í
tengslum við sölu „grænu greinarinnar" sem
mátti teljast hápunktur fjársöfnunarinnar. Þar
kom við sögu fjöldi ntanns, sem studdi átakið
bæði með orðum og gerðum og árangur varð
ótrúlega góður.
Það væri vissulega freistandi að telja upp nöfn
allra sem lögðu hönd á plóginn en ég læt það
ógert. Ég nefni þó Valdimar Jóhannesson
starfsmann átaksins.
Sala „grænu greinarinnar“ út af fyrir sig tókst
bærilega - hefði þó mátt vera betri - en bragarbót
er að við eigum nægar birgðir til að efna til sölu-
dags á „grænni grein“ aftur að vori. Við höfum nú
lært af reynslunni og vitum hvernig slík sala
verður betur skipulögð.
Það er vissulega ástæða til að taka það fram í
tengslum við sölu á „grænu greininni“ að aðildar-
félög Skógræktarfélags Islands brugðust alveg
eins vel við því verkefni eins og öllum öðrum
verkefnum sem þau hafa tekist á hendur í sam-
bandi við landgræðsluskógaátakið 1990.
Eins og áður sagði hefur fjáröflun gengið vel -
undirtektir um fjárstuðning hafa verið góðar,
málstaðurinn á greinilega hug og hjarta alls þorra
landsmanna.
Á öllum sviðum starfsins hefur verið lögð
áhersla á hinar jákvæðu hliðar, - bjartsýni og
84
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990