Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Blaðsíða 89
orðum um það starf sem unnið hefur verið á
ykkar vegum og þeirra sem hafa gengið til liðs við
málstaðinn.
Samkvæmt samantekt úr svörum við ákveðn-
um spurningum sem leitað var eftir kemur fram
eindreginn vilji til áframhaldandi starfsemi
átaksins á næsta ári (þessar upplýsingar liggja
hér frammi).
Þar kemur líka fram að skráðir sjálfboðaiiðar
hafa orðið tæp 8 þúsund, gróðursetningin hefur
gengið vel, plöntunum yfirleitt vegnað vel - og
menn virðast almennt reiðubúnir að takast á við
álíka verkefni á næsta ári.
Þetta verður bara aldrei fullþakkað. Þessar
undirtektir og þetta fórnfúsa starf á eftir að vekja
athygli víðar en hér á íslandi. Og það er öllum
þátttakendum til heiðurs og sóma.
Mér finnst ástæða til að skjóta hér inn í
nokkrum orðum um „Vinaskóginn" sérstaklega
vegna þess að hann hefur nokkra sérstöðu gagn-
vart gróðursetningarreitunum 74 sem eru víðs
vegar um land. Allir eru þeir reitir með sínu sniði
en eiga þó mest sameiginlegt. Vinaskógurinn
hefur þó einna helst sín sérkenni.
Hann er í Kárastaðalandi í Þingvallasveit og
mun með tíð og tíma verða við væntanlegt inn-
gangshlið í þjóðgarðinn á Þingvöllum.
í þennan reit var efnt til gróðursetningar fyrir
fé sem erlend sendiráð á íslandi hafa gefið til
átaksins. Gjafir til hans nema nú 1,6 milljónum
króna en til viðbótar kemur það fé sem safnast
hefur í söfnunarbaukana sem komið var upp á
þeim stöðum sem ferðamenn fara um þar sem
þeir eru hvattir til að „leave a tree in Iceland“
(skilja eftir sig tré á íslandi).
í þennan reit hafa einnig gróðursett og munu
gróðursetja tré þjóðhöfðingjar sem hingað koma
á vegum forseta okkar, frú Vigdísar Finnboga-
dóttur, og láta í ljós ósk um það, en forsetinn er
eins og kunnugt er verndari átaksins og einn
helsti stuðningsmaður skógræktar á íslandi.
Þar verða einnig gróðursett tré sem fengin eru
fyrir gjafir til hennar eða tengjast embætti forset-
ans. Reiturinn er ekki ýkja stór enn, en þar eru
stækkunarmöguleikar. Hann er girtur rafmagns-
girðingu sem Kristinn Skæringsson skógarvörður
á Suðvesturlandi hefur annast. Gróðursetning í
reitinn hefur verið skipulögð af Félagi íslenskra
landslagsarkitekta sem gaf þá vinnu. Þar hefur
verið komið fyrir stöpli með nafninu „Vinaskóg-
ur“ höggnu í steininn og stálplötum með áletrun
gefenda og kveðjuorðum sem gjöfinni fylgja.
Sextán plötur hafa þegar verið settar á stöpulinn
- Mitterand Frakklandsforseti gróðursetti tré þar
síðast í gær - og síðan verður haldið áfram -
settur upp nýr stöpull þegar þessi er fullsetinn.
Til þessa vinaskógar hafa þegar safnast um 2
milljónir og von á meiru.
Þegar litið er yfir atburði þessa átaksárs er það
sem upp úr stendur vitneskjan um það, hversu
mikilvægur samtakamáttur félaganna er í raun.
Þau eru að vísu mismunandi að gerð - mismun-
andi á vegi stödd í sínu starfi í heimahéraði - en
þau sem minna mega sín eiga eftir að eflast. Á því
er enginn vafi. Vindar blása okkur öllum í hag.
Á þessari stundu er þó það sem þyngst vegur
vissan um að allir geri sér góða grein fyrir því afli
sem felst í samstöðunni - að standa saman sem
einn - að jákvæður hugsunarháttur sé efst á blaði
- trúnaðartraust - bj artsýni - trú á gróðurmáttinn
sem býr í íslenskum jarðvegi - að við færum
okkur í nyt reynsluna - og viðhöfum fagleg
vinnubrögð - að við tileinkum okkur nútímalegar
aðferðir - skipuleggjum skógræktarstarfið til
lengri tíma - gerum áætlanir til fleiri ára og
stöndum við þær.
Við sem hófum þetta átak í tilefni 60 ára
afmælis Skógræktarfélags íslands erum stolt af
framlagi ykkar. Hvar og hvenær sem kallið kom
voru félögin reiðubúin að láta hendur standa
fram úr ermum.
Mér er næst að halda að ræktunarstarfið setji
sín merki á þá persónu sem við það fæst - eða er
það á hinn bóginn - að tréð beri merki þess og
eiginleika sem um það hirti - hvort heldur sem er
- samspilið er gott - samspilið maður og tré.
Greinargerð fluttá aðalfundi Skógrœktarfélags
íslands á Flúðum 31. ágúst 1990.
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990
87