Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 113

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 113
Lerkitrjákróna í Pinéga með mörgum könglum. Myndl photo: A.S. Crown of larch at Pinega showing profuse coning. Við flugum fram hjá stóru skógarhöggsvæði, þar sem þeir höfðu höggvið ræmur, ekki verulega stórar, en þeir skildu eftir að mér virtist skjól- belti, sem 1 íklega eru reyndar belti með frætrj ám. Og þeir voru líka að gera tilraunir með jarðvinnslu á þessu svæði. Við sáum,að hluti af svæðinu hafði verið herfað“. Við lentum á flugvelli hjá smábænum Pinéga. Þar tóku á móti okkur þrír skógræktarmenn, sem umsjón höfðu með nærliggjandi skógarsvæðum. Okkur var skýrt frá því, að nú stæði til að höggva mikið á þessum slóðum og skipulagning á tilhögun skógarhöggsins stæði yfir. Hún fólst m.a. í því að móta trjáræmur, eins og þær sem við sáum úr þyrl- unni, og einnig var fyrirhuguð mikil gróðursetning. Nú var aftur stigið upp í þyrluna og fylgdu heimamenn okkur. Flogið var stundarkorn, þar til við komum yfir stórt, ferhyrnt rjóður í skógin- um, kannski 10-20 ha að flatarmáli. Þarna skellti þyrlan sér niður og lent var skammt frá skógar- jaðri. I þessu mikla rjóðri var lítill nýgræðingur og engin mannvirki utan bjálkahúsræksni skammt frá lendingarstaðnum. Við spurðum, hvort hér hefði verið stundaður einhver búskapur áður, en fengum það svar, að fangabúðir hefðu staðið hér á sínum tíma. Maður gat sér þess til, að fangar hefðu verið látnir höggva skóg þarna í kring, eins og ótal sagnir eru um úr slíkum búðum á norður- slóðum. Nú vorum við staddir um 100 km sunnar en í Jorna. Flatlent er hér og hæð yfir sjávarmáli um 200 m. Skógurinn hér var mun gróskumeiri en í Jorna. Við göngum úr rjóðrinu eftir skógarvegi, sem skorinn var hjólförum, því að jarðvegurinn er ákaflega leirkenndur. Okkur er sagt, að vegagerð sé miklum erfiðleikum bundin hér um slóðir vegna þess að gott efni í burðarlag finnst hvergi. Leirinn veðst mjög upp í bleytu og hefir litla burðargetu. Fyrir því verður helst að draga við- inn út úr skóginum, þegar jörð er frosin. Skógurinn hér var höggvinn fyrir um 50 árum og ungur skógur hefir vaxið upp eftir það. Við göngum fyrst fram hjá 3ja til 4ra m hárri furu, sem er hæfilega þétt, og innan um hana vex ung björk. I sýslum leiðsögumanna okkar er skógur felld- ur á 160 þús. ha árlega og gróðursett er í 35 þús. ha, en hinn hlutinn á að endurnýjast með sjálf- sáningu. Hér er talsvert mikið af lerki í laufskóginum. Sums staðar myndar það nokkuð samfelldar þyrp- ingar og þegar lengra kemur inn í skóginn er meira af þeim. Okkur er sagt, að þetta lerki sé um 45 ára gamalt og 16-18 m hátt það hæsta og form- ið ákaflega fallcgt. Flest lerkitrén eru óaðfinnan- leg (sjá myndir). Græn króna er um 40% af bol- lengd á mörgum trjánna, en okkar menn vilja helst, að hún sé ekki nema um þriðjungur af bol- lengd í timburskógi. Ef hugsað er til fræfram- leiðslu, þarf krónan að vera stærri. Þeir vilja gjarnan fá ungviði af björk með lerkinu til þess að hreinsa lerkigreinarnar betur burt. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990 111
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.