Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 131

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 131
tekinn að skrýða það meir og meir með hverju ári sem líður. Landnám birkisins þar sem áður var svartur sandur norðan núverandi þjóðvegar hjá Ásbyrgi, má rekja til þess að Erlingur flutti skógarlim, sem féll til við grisjun inni í Ásbyrgi, og lagði á sandinn. Þegar Ásbyrgi var friðað af Skógræktinni árið 1928 var skógurinn sagður mjög á fallanda fæti. Tveir skógarreitir, Leirutjarnarskógur og Botns- skógur stóðu einir eftir og voru mjög feysknir, svo að fúasprekin þóttu til mikillar óprýði. Ásbyrgi var þá þegar orðið fjölsóttur ferða- staður og eftirsóttur staður til mannfunda, þannig að mikils þótti um vert að þar væri allt með sóma. Það kom eðlilega í hlut Ásbyrgisbónda að sjá um Byrgið fyrir Skógræktina og mun hafa komið nokkurt gjald fyrir, þó að fráleitt hafi öll fyrir- höfn verið reiknuð. Þar þurfti margt að laga og st.öðugt að hreinsa og líta eftir tjaldstæðum og samkomusvæðum. Skógarleifarnar tóku og ört við sér og brátt spratt nær samfelldur skógur um mestan hlutaByrgisins. Þáþurfti að grisjaoggera gönguleiðir til helstu skoðunarstaðanna. Þarna gegndi Erlingur í raun bæði hlutverki skógar- og landvarðar eins og þau störf eru nú skilgreind. Það var árið 1947 að fyrst var plantað erlendum trjám í Byrgið og þá og lengi síðar á vegum Skóg- ræktar ríkisins en síðar einnig á vegum Skógrækt- arfélags Norður-Þingeyinga, en öll var plöntunin í umsjá Erlings á meðan hann var í Ásbyrgi. Skógræktarfélag Norður-Þingeyinga var stofnað árið 1947. Framan af starfaði það í tveimur deildum og var Erlingur þá formaður Kelduhverfisdeildar en síðan eftir sameiningu deildanna í stjórn félagsins þar til hann flutti á brott árið 1961. Síðustu tíu árin sem Erlingur bjó í Ásbyrgi eða frá ársbyrjun 1951 var hann ráðinn skógarvörður fyrir sýsluna og hafði fyrir hálf laun. Varla mun sú skipan þó hafa breytt miklu um störf hans sem alla tíð voru svo sterklega tengd fegrun nágrenn- isins og aðhlynningu gróðurs. Erlingur var kvaddur til ýmissa starfa fyrir sveit sína og hérað, þó að fjarri væri skapi hans að sækjast eftir því, sem ýmsum finnast vegtyllur. Hann var snemma kosinn í hreppsnefnd og var mjög lengi oddviti sveitar sinnar eða frá 1942- 1961. í sýslunefnd sat hann frá 1938-1961 og gegndi jafnframt trúnaðarstörfum fyrir kaupfé- lag sitt. Kunnugt er mér að vænst þótti honum um þátt sinn í að reisa Skúlagarð, félagsheimilið og skólasetrið í Kelduhverfi. Eins og fram hefur komið fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur 1961. Þá fékk Erlingur starf hjá Búnaðarbanka íslands og vann mest við Stofn- lánadeild landbúnaðarins og veit ég að hann þótti þar starfsamur og traustur starfsmaður. Erlingur var maður einkar prúður í framkomu og bar sig aldrei á torg en hann var jafnframt skoðanafastur og gat vel sett þær fram. Hann var gæddur ríkum gáfum, víðlesinn og fjölfróður. Hann unni enda mjög öllum góðum bókmennt- um, en þó fyrst og fremst góðum Ijóðum. Skáld hans voru Einar Benediktsson og Stephan G. Stephansson. Ljóð þeirra kunni hann að því er virtist flest utan bókar, svo mjög dáði hann mannvit þeirra og snilli. Sjálfur var hann ekki aðeins góður hagyrðing- ur, heldur og skáld, þó að mest setti hann saman sér til hugarhægðar og flíkaði aldrei. Eftirfarandi vísur eru úr litlu ljóði, sem hann nefndi Tvennar tíðir. Það er í senn kveðja hans til lífsins og skóganna hans fyrir norðan. Vorið bíður, vorið kallar vaknar allt og lifna fer, kvikur fugl í lundi ljóðar. Skógurinn angar mjúkum grænum greinum. Hárin grána, hárin falla hrukkast kinn og blikna fer eins og hendir allan jarðargróður svo sem blöð af barkarlitum greinum. Jónas Jónsson ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990 129
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.