Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 116

Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 116
Utanverður Junkerdalur. Það er víða bratt í Noregi. Mynd: B.G. Johansen skogmester sem einnig var allan tímann leiðsögumaður fyrir hópinn sem lenti í Junkér- dalnum. Nordlandsfylki er afar fjöllótt og langt. Jarðfræðilegur mismunur er mikill sem endurspeglast í skógin- um, því hver trjátegund velur sér stað eftir jarðvegsgæðum sem eiga sér upphaf í berggrunni þeim sem undir er. Hér eru norðurlandamæri fyrir álm og linditré og setur laufskógur mik- inn svip á fylkið með sínum 3 birkitegundum: viðju, selju og ýmsu fleira. Veðurfarslegur munur er einnig mikill í þessu mjóa og langa fylki, allt frá strandloftslagi með rign- ingu og roki og mildum vetrum og svölum sumrum út við strönd- ina, til meira meginlandslofts- lags inn til landsins, þar sem úr- koma er svipuð og norðan Vatna- jökuls eða um 400 mm á ári. í sunnanverðu fylkinu er Saltfjall- ið, sem er merkilegt fjall í skóg- fræðilegu tilliti, þvf rauðgrenið sem þekur allar koppagrundir sunnan þess hefur ekki haft tíma til að komast norðuryfir það á göngu sinni norður Noregsland. Allt það rauðgreni sem nú vex norðan Saltfjallsins er þar til- komið af manna völdum og er það víða og mikið að vöxtum á hverjum stað. Skógarfura er búin að vera lengi á þessum slóðum þótt ekki jafnist hún á við það sem best gerist sunnar í landinu. Þó sáum við þar skógarfuru.allt að 25 metra háa. Skógurinn hefur alltaf verið mikilvægur þáttur í lífi fólksins á þessum slóðum. Á ströndinni bjó mestur hluti íbúanna og lifði af fiskveiðum og landbúnaði, en skógurinn gaf efni í hús, hjalla, trönur, báta og aðra búshluti. En tiltölulega óhagstætt veður- far, mikið högg og mikið beitará- lag olli þvf að skógur hvarf af stórum svæðum á ströndinni. Til marks um álagið á skóginn, þá stendur skrifað í skýrslu sýslu- mannsins í Nordlandsfylki, að 1871 - 1875 voru byggðir í héruð- unum Bindal, Vefsn, Hemnes, Mo og Saltdal alls 6.609 tíæringar, áttæringar og sexæringar. Báta- smiðjur voru víða, langt fram eftir síðustu öld og er bærinn Rognan, fyrir botni Skjerstadfjarðar, lfk- lega þekktastur staða fyrir slíka iðju. Nokkrar tölur yfir landstærðir og skóg í Nordlandsfylki: Fylkið allt er 3.630.200 ha Klætt skógi 1.025.900 ha Framleiðsluskógur 582.900 ha Mýrar undir skógarjaðri 129.800 ha Landbúnaðarsvæði í notkun 52.700 ha Árlegt högg barrviðar og lauf- viðar 212.745 m3 Þegar litið er á kort af suður- hluta fylkisins, koma í ljós nokk- ur kunnugleg nöfn sem margir ættu að þekkja. Þetta eru stað- irnir hvaðan við höfum fengið fræ til ræktunar rauðgrenis á ís- landi: frá suðri til norðurs, Bin- dal, Grane, Vevelstad, Vefsn, Leirfjord, Hemnes, Mo í Rana. En því miður hefur rauðgrenið ekki staðist þær væntingar sem menn bundu við það hér á landi eins og flestum er kunnugt. fbúar Nordlandsfylkis hafa ver- ið nokkuð duglegir við að endur- planta þeim skógi sem tapaðist og áður er um getið, og var tals- verður áhugi á útlendum trjáteg- undum á árunum upp úr 1900. Til marks um það eru plantanir t.d. í Brevik í Beiarnfirði og Storjord í Saltdal. Um þetta má lesa í grein Sigurðar Blöndals í Ársriti Skógræktarfélags fslands 1989, en á báða þessa staði komum við f þessari ferð og gefur þar að líta stórkostleg tré af ýmsum tegund- um. Norðmennirnir eru þó ekki líklegir til að nýta mikið af þessari reynslu með erlendar trjátegundir nema kannski á ystu ströndum, þar sem mikill áróður er nú rekinn fyrir því að halda sem mest í innlendar trjátegund- ir og að breyta náttúrulegri ásýnd skógarins sem minnst. Náttúruverndarsinnar eru á ferð- inni í Noregi ekki síður en hér á íslandi og á þessum slóðum heyrðum við oft talað um að vernda laufskóginn sem er afar 112 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2000
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.