Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 128

Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 128
MINNING Jóhann Þorvaldsson fyrrv. skólastjóri F. 16. maí 1909 • d. 9. október 1999 Jóhann var Svarfdælingur að ætt og uppruna - fædd- ur að Tungufelli í Svarfaðardal. Foreldrar: Þorvaldur Baldvinsson, bónda á Böggvisstöðum Þorvaldssonar og kona hans Sigríður Sigurðardóttir, bónda í Tungu- felli Sigurðssonar. Gagnfræðingur frá M.A. 1929, lauk kennaraprófi 1932. Kenndi í Ólafsvík og á Suðureyri áður en hann kom til Siglufjarðar 1938. Eftirlifandi kona hans er Friðþóra Stefánsdóttir. Þau eignuðust 5 börn. Eftir að lóhann kom til Siglufjarðar varð hann fljótt virkur á hinum ýmsu sviðum félagsmála. Þótt hann léti víða til sín taka hygg ég að einkum tvennt hafi verið honum öðru hugleiknara - starf að bindindismálum sem hann sinnti um áratugaskeið og skógræktarstarfið sem átti svo mjög hug hans. Tveimur árum eftir komu hans til Siglufjarðar er Skógræktarfélag Siglufjarðar stofnað að forgöngu Rotarymanna og er Jóhann kosinn gjaldkeri fyrstu stjórnará stofnfundinum 6. október 1940. Fyrstu tilraunir til skógræktar í Siglufirði gengu illa - félagið hafði fengið landspildu úr Hólslandi og plantað þar um nokkurra ára skeið með litlum árangri og orðið fyrir ýmsum áföllum og var því hætt. Margir töldu þá vonlaust að hér mætti rækta tré með nokkrum árangri og því væri framhald á slíku bara sóun á tfma og kröftum. Ekki voru þó allir sammála þeirri fullyrðingu og allra síst Jóhann Þorvaldsson. Hann tók þá við stjórn og for- mennsku í Skógræktarfélagi Siglufjarðar 1948. Tveim árum síðar fékkst nýtt svæði tii ræktunar í Skarðdals- landi. Þar var hafist handa af miklum dugnaði og ekki fengist um það þótt margir hristu höfuðið. Þá höfðu og flestir um nokkuð annað að hugsa þar sem síldar- ævintýrið var í algleymingi. í þetta sinn gekk hinsvegar skógræktarævintýrið upp. Þetta kostaði samt mikla vinnu og fyrirhöfn - trén uxu hægt - þau urðu fyrir áföllum vegna fannfergis á vetrum og harðrar veðráttu. Trén uxu samt jafnt og þétt. Þetta tók allt sinn tíma jú en, þetta var hægt og það skipti öllu máli. lóhann lifði það að sjá þetta „fósturbam" vaxa og dafna við harðan kost tii þess sem það er f dag. Við blasir fallegt og skemmtilegt útivistarsvæði þar sem hæstu trén ná allt að 10 metra hæð. Lagðir hafa verið göngustfgar um hluta svæðisins þannig að auð- velt er að komast um það enda fjölgar þeim stöðugt sem heimsækja skógræktina f Skarðdal. Hún er sannarlega lifandi minnismerki um einstaka elju og þrautseigju við óblíðar aðstæður. Hann gat glaðst yfir þeim árangri sem hafði náðst - hann var með sjálfum sér stoltur af þessu verki, enda full ástæða til. Meðal skógræktarmanna var hann þekktur og virtur fyrir störf sín og framgöngu. Að verðleikum hefur hann hlotið ýmsar viðurkenningar bæði fyrir skógræktarstörf og fleira. Skógræktarfélag íslands gerði hann að heiðursfélaga er hann varð áttræður og að sjálfsögðu var hann heið- ursfélagi í sínu litla félagi, Skógræktarfélagi Siglufjarð- ar. Á efri árum fór Jóhann að fást nokkuð við vísnagerð í tómstundum og var þeim vfsum safnað í lítið vísnakver sem kom út á síðasta ári er hann varð níræður. Um leið og honum eru færðar þakkir fyrir ómetanlegt starf í þágu skógræktar í Siglufirði, fyrir seigluna sem þurfti til að standast erfiðleikana, vitna ég til upphafs kvæðis úr ljóðakveri hans þar sem viðhorf hans koma vel fram. Kvæðið heitir „Verk að vinna - framtíðarsýn". Græðum landið, græðum fólkið græðum allt sem lífið ól. Klæðum sandinn, klæðum hraunið klæðum allt sem vantar skjól. Blessuð sé minning lóhanns Þorvaldssonar. Anton V. lóhannsson 124 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2000
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.