Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 6
SKÓGRÆKTARRITIÐ 20144
Minning
SIGURÐUR BLÖNDAL
03. nóv em ber 1924 - 26. ágúst 2014
Sigurður Blöndal, skógræktarstjóri
Genginn er einn helsti máttarstólpi skógræktar
á Íslandi, Sigurður Blöndal skógræktarstjóri.
Sigurður tengdist skógræktarhreyfingunni sterkum
böndum frá fyrstu tíð. Hann var víðlesinn og
stöðugt að afla sér þekkingar á sviði skógræktar
og náttúruvísinda. Úr þeim þekkingarbrunni var
hann óspar að miðla til félagsmanna í skógræktar-
félögum innan vébanda Skógræktarfélags Íslands.
Á þeim árum sem Sigurður gegndi starfi skógræktar-
stjóra fór hann víða um land og heimsótti þá
gjarnan skógræktarfélög og skógarreiti. Afrakstur
þessara ferða birtist svo oftar en ekki í greinum
Sigurðar í Skógræktarritinu undir vinnuheitinu
Fyrr og nú, en auk þess ritaði hann fjölmargar
aðrar greinar um skógrækt. Í starfi sínu sem
skógræktarstjóri árin 1977-1989 sýndi Sigurður
það í verki hversu mikilvægt það væri að efla starf
grasrótarinnar og leggja skógræktarfélögum lið.
Samhliða öflugu starfi fyrir skógræktarhreyfinguna
vann Sigurður markvisst að því að efla skógrækt
bænda og auka skilning innan bændastéttarinnar
á skógrækt sem búgrein. Með skrifum sínum hafði
hann sterk og mótandi áhrif á þá kynslóð sem nú
fer fyrir skógrækt á Íslandi og ef að líkum lætur
mun áhrifa hans gæta langt fram á þessa öld.
Ritstjórar Skógræktarritsins vilja að leiðarlokum
birta nokkrar minningargreinar sem hver um sig
varpa nokkru ljósi á starf Sigurðar, persónu hans
og lífshlaup.
Minningarræða við útför Sigurðar Blöndal
frá Egilsstaðakirkju
Kæru vinir, sveitungar og vandamenn Sigurðar
Blöndal!
Ég stend hér á þessari minningarstund og á þessum
undurfallega degi til að efna gamalt loforð við Sigurð
Blöndal um að tala yfir honum gengnum. Ég leyfi
mér að líta á mig sem fulltrúa þeirra mörgu sem
urðu fyrir áhrifum af hugsjónaeldi og framtíðarsýn
Sigurðar um ræktun lands og lýðs sem hann boðaði
manna snjallast á seinni hluta 20. aldar. Hannes
Hafstein orðfærði þá sýn í margrómuðu kvæði sínu
við aldamótin fyrri. Segja má að sú draumsýn hafi nú
ræst. Við lifum og menning okkar vex í lundum nýrra
skóga.
Ég hitti Sigurð Blöndal fyrst árið 1970 þegar hann
Sigurður var skemmtilegur samferðarmaður. Hann kunni þá list að
ræða við fólk og var forvitinn um hagi þess. Fyrstu kynni ritstjóra af
Sigurði voru árið 1980 þegar Sigurður var skógræktarstjóri. Hafði fengið
tíma hjá ritara hans í þeim tilgangi að forvitnast um skógræktarnám.
Átti von á stuttu viðtali. Eftir fjögurra tíma samtal, sem snérist að mestu
um fiskvinnslu og umræður um þróun í sjávarútvegi, en minna um
skógrækt, sagðist hann eiga nokkra pésa um skógrækt sem hann vildi
afhenda. Skriðum við upp á háaloft á Ránargötu 18 þar sem hann dró
fram bækur og bæklinga. Klifaður í bak og fyrir af þessum eftirminni-
lega fundi mátti matvæla- og fiskvinnslufræði sín lítils næstu vikurnar í
fisktæknanáminu við Fiskvinnsluskólann í Hafnarfirði.
Mynd: Jóhann F. Gunnarsson