Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 10

Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 10
SKÓGRÆKTARRITIÐ 20148 Við ferðalok vil ég minnast góðs vinar, félaga og náins samstarfsmanns, Sigurðar Blöndals, fv. skóg- ræktarstjóra nokkrum orðum. Kynni okkar Sigurðar hófust fyrir hartnær 50 árum þegar hann kom í heimsókn til frænda míns og fóstra, Þorsteins Valdimarssonar skálds, sem þá bjó á heimili okkar, en Þorsteinn hafði unnið hjá Sigurði í skóginum á Hallormsstað í mörg sumur og var þeim vel til vina. Ég menntaskólastrákurinn minnist þessara fyrstu kynna með mikilli ánægju og kannski var þarna lagður ákveðinn grunnur sem varð þess valdandi að ég nokkrum árum seinna valdi skógrækt sem nám og lífsstarf. Þessa fyrstu kvöldstund með Sigga kynntist ég fræðaranum, sögumanninum og söngmanninum sem heillaði mig strax og þarna tókust kynni og vinátta sem entist ævilangt. Að loknu skógræktarnámi í Noregi fluttist ég árið 1974 ásamt fjölskyldu til Íslands og tók til starfa sem aðstoðarskógarvörður á Hallormsstað. Þetta voru spennandi tímar, að fá að takast á við verkefni í stærsta skógi landsins undir handleiðslu Sigurðar. Árangur af þrotlausu starfi frumherjanna, þ.á.m. Sigurðar, var að koma í ljós, skógar á Íslandi gætu orðið raunveruleg auðlind sem skipti máli fyrir land og þjóð í framtíðinni. Þetta var á fyrstu árum skipulegrar skógræktar á vegum bænda í Fljótsdals- áætlun sem byrjaði 1970 en Sigurður átti mikinn þátt í að það verkefni hófst og fengust fjárveitingar frá ríkinu til framkvæmda. Fljótdalsáætlun varð síðan fyrirmynd að skógræktarverkefnum á bújörðum bænda víðar um land sem á endanum leiddi til stofn- unar Héraðsskóga og seinna fimm landshlutaverk- efna, sem í dag eru stærstu framkvæmdaaðilar í skógrækt á Íslandi. Sigurður var fyrst og fremst fræðarinn, með yfir- gripsmikla þekkingu á skógrækt og náttúru landsins og skrifaði ótal greinar í blöð og tímarit um skógrækt ásamt að fræða og kenna skógrækt við m.a. Bænda- skólann á Hvanneyri, Garðyrkjuskóla ríkisins í Hvera- gerði og Menntaskólann á Egilsstöðum. Sigurður var mjög virkur í starfi skógræktarfélaganna í landinu og var eftirsóttur fyrirlesari á fundum þeirra. Hann tók að sér ásamt Skúla Gunnarssyni að skrifa bókina Íslandsskógar, hundrað ára saga sem út kom á hundrað ára afmæli skipulegrar skógræktar á Íslandi, sem miðast við upphaf gróðursetningar á Furulundinum á Þingvöllum árið 1899. Sigurður var áhugasamur ljósmyndari og hafa margar myndir hans ratað inn í bækur og tímarit sem fjalla um skógrækt. Sigurður var alla tíð mjög áhugasamur um samstarf við erlenda skógræktarmenn og fór víða um heim og kynntist aðstæðum, stefnum og straumum í skóg- ræktarmálum heimsins. Sérstaklega lagði hann mikla rækt við efla samstarf og tengsl við nágranna okkar á Norðurlöndum og eins Skotland, Írland og Kanada. Eftir að ég tók við sem skógræktarstjóri árið 1990 studdi og leiðbeindi Sigurður mér ávallt þegar ég leitaði til hans en minningin um glaðværan félaga, vinamargan og hrók alls fagnaðar á fundum og ráðstefnum skógræktarfólks ber samt hæst. Jón Loftsson Fallinn er lávarður skógarins, einn af máttarviðum íslensks og ekki síst austfirsks samfélags á 20. öld. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Sigurði Blöndal þegar ég vann hjá Héraðsskógum á síðasta áratug 20. aldar. Þá var hann fluttur aftur heim á Fljótsdalshérað og vann að því að reisa sér hús í miðjum Hallormsstaðaskógi þar sem hann hafði alið mestan sinn aldur. Á honum var engan bilbug að finna þó að eftirlaunaárin væru runnin upp. Mér er minnisstætt hve þrekmikill hann var þegar við vorum að velja leiðir fyrir göngustíga í Eyjólfsstaðaskógi fyrir Skógræktarfélag Austurlands. Þá áttum við góða stund á Reynivöllum, undir gríðarstórri krónu aldar- gamals reynitrés sem varð okkur Sigurði síðar báðum viðfangsefni fyrir gleiðlinsur myndavéla okkar. Á leið- inni til baka litum við síðan við hjá Douglasgreni- trjám sem standa nokkur í miðri sumarhúsabyggð- Pípan var hluti af lífsstíl Sigurðar. Hér er hann að syndga upp á náðina ásamt Sæmundi Þorvaldssyni skógræktarfrömuði á Vestfjörðum. Aðalfundur í Reykholti 2002. Mynd: BJ

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.