Skógræktarritið - 15.10.2014, Side 24

Skógræktarritið - 15.10.2014, Side 24
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201422 barrheldnara en rauðgreni. Nota skal öflugar bakka- plöntur, stærð í hlutfalli við grósku lands. Ræktunar- tími er 10-25 ár. Fjallaþinur (Abies lasiocarpa) Fjallaþinur hefur verið lengi í ræktun hér en árangur er misjafn. Tugum kílóa af fjallaþinsfræi var sáð í gróðrarstöðvum landsins á síðustu öld en árangurinn getur varla talist í samræmi við það. Alla vega ef litið er á skýrslur yfir jólatrjáatöku því þá kemur í ljós að aðeins nokkur hundruð fjallaþinir hafa verið seldir sem jólatré hérlendis. Ástæðurnar eru margvíslegar. Mikil afföll hafa orðið vegna þess að plönturnar þola illa samkeppni við gras fyrst eftir gróðursetningu og vegna kals og sveppasjúkdóma. Þá er mikil tvítoppa- myndun í fjallaþini vegna haustkals og svo eru til kvæmi með allt of gisinn vöxt eins og Skagway (athyglisvert er að besta stafafurukvæmið er eitt versta þinkvæmið). Þrátt fyrir þetta eru bundnar nokkrar vonir við fjallaþin sem jólatré. Hann er barrheldinn og ágætlega ilmandi. Hann getur verið afar þéttur og íturvaxinn og hann tekur vel hliðar- og tvítoppa- klippingum. Hann þarf að vaxa undir skermi en einnig kemur til greina að nota hann í skjólgróðursetningum með lerki, 1200 lerki á móti 6000 fjallaþinum á hektara. Með réttu kvæmavali (suðlæg fjallakvæmi) og topp- og hliðarklippingum má fá nýtingu á fjalla- þin upp fyrir 50%. Þá eru afföll ekki talin en þau eru meiri hjá þin en öðrum ættkvíslum jólatrjáa. Velja verður stærð plantna eftir grósku lands og ekki setja smáplöntur á kaf í sinu. Ræktunartími er 12-24 ár. Spáð og spekúlerað Plöntubil við gróðursetningu ræðst af nokkrum þáttum. Sé meiningin að hefja ekki jólatrjáatöku fyrr en trén hafa náð 1,5 m hæð þá má ekki fara mikið niður fyrir 1,5 m í bil eða 4450 tré á hektara. Sé hinsvegar inni í myndinni að hefja jólatrjáatöku strax við 1 m hæð þá má fara niður í 1,2 m bil eða um 7000 tré á ha. Þá látum við lokið umtali um helstu jólatrén og snúum okkur að allra handa pælingum um jólatrjáaræktun og greinaræktun framtíðarinnar og spáum í hugsan- lega möguleika. Jólatré í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn líkjast Íslendingum að því leiti að þeir nota allskonar tré sem jólatré. Nýlega var gerð könnun á því hver væru þeirra uppáhalds jólatré. Tíu vinsælustu tegundirnar voru: Kvæmamunur í fjallaþin. Annars vegar „njólar“ af Skagway kvæmi og hins vegar státin planta af suðlægu kvæmi.

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.