Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 26
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201424
Blöndal um balsamþingróðursetningu af þremur
kvæmum frá 1962 „Flestar plönturnar vesluðust upp“.
Um hvítþin „Á 3. gróskuflokki hafa plönturnar varla
tosast upp í hálfan meter á 30 árum“. Um nordmanns-
þin „Af þeim 600 trjám, sem gróðursett voru 1967 lifa
3 í kröm, og hafa nánast ekkert vaxið. Að vísu voru
þau gróðursett í þriðja gróskuflokk“.
Sumum þinum hættir meira við haustkali en
öðrum, þetta á sérstaklega við um nordmannsþin
og hvítþin. Eigi að vera einhver von um að nýta þá
sem jólatré þá er ítrekuð klipping algjört skilyrði.
Raunar á þetta að meira eða minna leyti við um hina
þinina líka, að eigi að fá gott nýtingarhlutfall, þá þarf
endurteknar klippingar yfir vaxtarlotuna.
Það sem gerir þin sérlega eftirsóttan sem jólatré er
að hann heldur nálunum áratugum saman eftir að
hann er felldur. Sjaldan er þó reynt til hlítar á þann
kost.
Síberíuþinur (Abies sibirica). Er fagurgrænni en
fjallaþinurinn og öllu léttbyggðari. Greinar hans eru
ljómandi fallegar og hann getur orðið ágætt jólatré.
Hann hefur þann galla að greinarnar eru fremur veiklu-
legar. Síberíuþinurinn hefur reynst þokkalega í upp-
eldi og greinilegur kvæmamunur er á þeim gróður-
setningum sem til eru í landinu. Stálpaðar potta-
plöntur af kvæminu Altai (plantað um 1995 undir
skermi) koma ágætlega út bæði í Kjarna, Vaðlareit og
víðar um land.
Eðalþinur (Abies procera). Mikið notaður í skraut-
greinar. Mikið af greinum hans er flutt hingað árlega
og selt undir nafninu nobilis. Nokkur dæmi eru um
að hann hafi þrifist ágætlega hér og þar um landið.
Hann er notaður sem jólatré í Bandaríkjunum.
Gróðursetjið pottaplöntur í skjóli.
Rauðþinur (Abies magnifica). Ágæt gróðursetning er
til af þessari tegund á Hallormstað undir skermi og
þykja trén sérlega jólatrjáaleg. Tegundin er náskyld
og nauðalík eðalþin.
Balsamþinur (Abies balsamea). Hefur verið rækt-
aður undir skermi í Fellsskógi í Þingeyjarsýslu og
Vaglaskógi. Greinarnar hafa verið seldar á Húsavík
undir nafninu ilmþinur, sem verður að kallast fyrir-
taks markaðssetning. Enda er balsamþinurinn mjög
ilmandi og raunar alveg í sérflokki með það. Greinar-
höfundur skoðaði 50 ára balsamþinreit í Vaglaskógi
Smá blágreniakur í Kristnesi. Trén eru 15-18 ára, af kvæminu Rio
Grande. Þegar hefur verið tekið mikið af trjám úr reitnum. Þau sem eftir
eru, eru flest öll klippt.
Síberíuþinur af Altai uppruna í Kjarnaskógi.