Skógræktarritið - 15.10.2014, Side 28

Skógræktarritið - 15.10.2014, Side 28
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201426 þrífst ágætlega hérlendis. Hægt að fá fallegar greinar en varla jólatré. Skógarfura (Pinus sylvestris). Eitt besta timburtré Evrópu en fáum þar á bæ hefur dottið í hug að nota það sem jólatré. Hinsvegar er skógarfuran mest gróðursetta jólatré Bandaríkjanna. Hér á landi er skógarfuran mun þéttari en stafafuran. Höfundurinn hefur ræktað skógarfuru af strandkvæmi frá Norður- Noregi, nánar til tekið Melöy Kommune. Gallinn er sá að nokkur hluti plantnanna er hrjáður af furulús. Reynslan er sú að um þriðjungur plantna sé óhæfur sem jólatré vegna þessa. Þá er vetrarlitur skógar- furu nokkuð gulgrár ef miðað er við stafafuru. Þrátt fyrir þetta er skógarfuran líkleg til að skila um 40% nýtingu þar sem best lætur. Ræktun á bersvæði og um 7500 plöntur á hektara. Uppskerutími 9-17 ár. Tíma gæti tekið að búa til markað fyrir skógarfuruna. Undirritaður hefur enn sem komið er aðallega selt hana sem smátré, 0,8-1,5 m á hæð. Þrettán ára blandgróðursetning í Kristsnesi. Rússalerki, stafafura og rauðgreni. Lerkið er fyrirmyndarfóstra, sem vex hraðar og gefur viðkvæmari tegundum skjól þegar líður að uppskerutíma. Lindifura (Pinus sibirica og P. cembra). Snotur fimm nála fura sem getur verið hið huggulegasta jólatré og ekki síður fallegar greinar. Skjólgóður staður, ekki undir skermi. Dögglingsviður (Pseudotsuga menziesii). Vísbendingar eru um mikinn kvæmamun hjá dögglingsviðnum og ekki ólíklegt að það finnist kvæmi sem hentað gæti til jólatrjáaframleiðslu hér undir skermi. Þarf vafalaust stæðilegar plöntur, klippingu og bestu aðstæður. „Þetta fína“ Loks eru hér taldar upp þrjár tegundir sem hentað gætu til greinaframleiðslu í smáum stíl, til dæmis til sölu í blómaverslunum, til kransagerðar og svo- leiðis smá heimilisiðnaðar. Þetta eru alaskasýprus (Chamaecyparis nootkatensis), fagursýprus (Chamaecyparis lawsoniana) og risalífviður (Thuja plicata). Allar hafa þessar tegundir vaxið og dafnað við bestu skilyrði undir skermi. En hægt vaxa þær.

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.