Skógræktarritið - 15.10.2014, Side 34

Skógræktarritið - 15.10.2014, Side 34
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201432 flutningi beykisins til Sæheims en með DNA-saman- burði hefur hann verið rakinn til Danmerkur. Tilgang- urinn hefur væntanlega verið að nýta skóginn sem beitarland fyrir svín og útvega verðmætan smíða- við á konungssetrinu. Nú þekur beykiskógur um 20 hektara og hefur hann skyggt út aðrar trjátegundir og ofurhægt lagt undir sig stærra svæði. Um sjö hektarar af skóginum eru nú náttúruverndarsvæði og heitir sá hluti Vollom, sem trúlega hefur sömu merkingu og Völlur. Hæstu trén eru um 25-30 m og gæðin þokkaleg, þótt þau keppi ekki við beykivið vaxinn í mið-Evrópu. Rétt sunnan við beykiskóginn er konungsgröf frá heiðnum sið og lauk heimsókn okkar í Hörðalandi þar. Talið er að þar sé grafinn Hákon hinn góði Aðal- steinsfóstri, yngsti sonur Haraldar hárfagra. Hann ólst upp hjá Aðalsteini hinum sigursæla Englands- konungi, þess er hafði sigur í orrustunni miklu við Ólaf Skotakonung, en í liði Aðalsteins voru ekki minni kappar en þeir bræður Egill og Þórólfur Skallagríms- synir. Þórólfur féll í orrustunni en framganga Egils réð samkvæmt Egilssögu baggamuninn. Varðveist hefur kvæði á fornensku um þessa frægu orrustu, Orrustan um Brunanborg. Hákon sneri heim til Noregs og tók við konungdómi af eldri bróður sínum, Eiríki blóðöxi, sem var orðinn óvinsæll meðal þegna sinna. Hákon aftur á móti varð vel látinn heima fyrir en herjaði víða um lönd. Árið 961 sóttu að honum frændur hans Eiríkssynir með liðsstyrk frá Danakonungi í mikilli orrustu að Fitjum sunnan við Björgvin. Hákon sigraði í orrustunni en lést af sárum sínum á Hellnum en mælti fyrir að heygja ætti hann á Sæheimi. Þar sem hann átti engan erfingja mælti hann svo fyrir að krúnan gengi til frænda hans Eiríkssona. Frá konungsgröfinni var stefnan tekin til Gulafjarðar en þar er talið að hið forna Gulaþing hafi verið en það mun hafa verið fyrirmynd Alþingis okkar Íslend- inga. Í Heimskringlu Snorra Sturlusonar segir svo frá: Þá er Hákon [hin góði] var konungur í Noregi var friður góður með búendum og kaupmönnum svo að engi grandaði öðrum né annars fé. Þá var ár mikið bæði á sjá og á landi. Hákon konungur var allra manna glaðastur og málsnjallastur og lítillátastur. Hann var maður stórvitur og lagði mikinn hug á lagasetning. Hann setti Gulaþingslög með ráði Þorleifs spaka og hann setti Frostaþingslög með ráði Sigurðar jarls og annarra Þrænda þeirra er vitrastir voru. En Heiðsævis- Konungsgröfin í Sæheimi sem talin er vera gröf Hákonar hins góða Aðalsteinsfóstra (d. 961 e. Kr.). Heimildir um forna höfðingja í Noregi eru m. a. sóttar í verk þeirra frænda Snorra Sturlusonar og Sturlu Þórðarsonar.

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.