Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 36

Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 36
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201434 gjalda þeim mest af eigum sínum. En móðir þeirra Atlasona var mjög ósátt við sáttfýsi Atla og Hásteins og sáu þeir Ingólfur og Leifur að hag sínum væri betur borgið í nýju landi. Þar missti Atli bandamenn góða og stutt var í endalok veldis hans. Þá er Haraldur konungur gekk til ríkis í Noregi og hann mægðist við Hákon jarl Grjótgarðsson, fékk hann Sygnafylki Hákoni jarli mági sínum, er Haraldur konungur fór í Vík austur. En Atli jarl vildi eigi af láta ríkinu, áður hann fyndi Harald konung. Jarlarnir þreyttu þetta með kappi og drógust að her. Þeir fundust á Fjölum í Stafa- nessvagi og börðust; þar féll Hákon jarl, en Atli varð sár og fluttur í Atley; hann dó þar úr sárum. Eftir það hélt Hásteinn (son hans) ríkinu, þar til er Haraldur konungur og Sigurður jarl drógu her að honum. Hásteinn stökk þá undan og brá til Íslands- ferðar. Hann átti Þóru Ölvisdóttur; Ölvir og Atli voru synir þeirra. Hásteinn skaut setstokkum fyrir borð í hafi að fornum sið; þeir komu á Stálfjöru fyrir Stokkseyri, en Hásteinn kom í Hásteinssund fyrir austan Stokkseyri og braut þar. Hásteinn nam land milli Rauðár og Ölfusár upp til Fyllarlækjar og Breiðamýri alla upp að Holtum og bjó á Stjörnusteinum og svo Ölvir son hans eftir hann; þar heita nú Ölvisstaðir. Ölvir hafði landnám allt fyrir utan Grímsá, Stokkseyri og Ásgautsstaði, en Atli átti allt milli Grímsár og Rauðár; hann bjó í Traðarholti. Ölvir andaðist barnlaus; Atli tók eftir hann lönd og lausafé; hans leysingi var Brattur í Brattsholti og Leiðólfur á Leiðólfsstöðum. Atli var faðir Þórðar dofna, föður Þorgils örrabeinsstjúps. Hallsteinn hét maður, er fór úr Sogni til Íslands, mágur Hásteins; honum gaf hann ytra hlut Eyrarbakka; hann bjó á Framnesi. Hans son var Þorsteinn, faðir Arngríms, er veginn var að fauskagrefti, hans son Þorbjörn á Framnesi. Ennfremur segir í Landnámu: Björn buna hét hersir ágætur í Noregi, son Veðrar-Gríms hersis úr Sogni; móðir Gríms var Hervör, dóttir Þorgerðar Eylaugsdóttur hersis úr Sogni. Frá Birni er nær allt stórmenni komið á Íslandi; hann átti Vélaugu. Þau áttu þrjá sonu; einn var Ketill flatnefur, annar Hrappur, þriðji Helgi; þeir voru ágætir menn, og er frá þeirra afkvæmi margt sagt í þessi bók. Í ljósi þessa og þess að landnám Ingólfs byggist að því er virðist af vinum og sveitungum Ingólfs og hins að Hásteinn, sonur Atla jarls á Gaulum og hans fólk, nemur stóra hluta Árnessýslu og Rangárþings ytra, er ljóst að við erum hér komin að leita rótanna. Í Hrífudal mætti okkur óvænt móttökunefnd heima- manna. Í broddi fylkingar voru bændur á samnefndum bæ, Kjell Ask og Petra kona hans, sem er fædd og uppalin á staðnum. Þau buðu upp á kaffi og ljúffengt bakkelsi og Kjell miðlaði af sínum fróðleik um hin sögu- legu tengsl. Var engu líkara en landnámsmenn hefðu verið samtímamenn og við værum nákomnir ættingjar, svo lifandi eru frásagnir heimamanna á Fjölum sem tala mállýsku sem líkist íslensku og er því sem lifandi staðfesting á skyldleika þjóðanna. Upp af vörinni í Hrífudal gat að líta bautastein og var okkur sagt að Ingólfur hafi reist steininn áður en hann hélt til hafs. Frá bautasteininum er svo steinsnar að styttu Einars Jónssonar af Ingólfi Arnarsyni, sem er gjöf Íslendinga til Norðmanna. Bjarni Benedikts- son, þáverandi dómsmálaráðherra og síðar forsætis- ráðherra, afhenti gjöfina við hátíðlega athöfn í Hrífudal þann 17. september 1961. Berit Gjerland minjavörður, sem fengin var til að fræða okkur um staðinn, var öllu varfærnari í sinni sögutúlkun. Hún benti á að ekkert hefði fundist við fornleifagröft sem staðfest gæti sannleiksgildi sög- unnar um að upphaf landnáms Íslands mætti rekja til þessa staðar og benti á að bautasteinninn, sem oft væri nefndur sem sönnun þess, væri eldra fyrirbæri eða frá 5. eða 6. öld. Það yrði því enn um sinn að meta sannleiksgildi fornbókmenntanna með það í huga að þær voru varðveittar sem munnmælasögur Kjell Ask miðlar sýn heimamanna í Hrífudal á söguna bak við landnám Íslands. Kristján Baldursson, Gísli Karel Halldórsson og Hans Fredrik Lauvstad fylgjast með af áhuga.

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.