Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 50

Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 50
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201448 Í gegnum tíðina hafa íslenskir skógræktarmenn verið iðnir við að kynna sér skógrækt í öðrum löndum. Þeir leita þá oftar en ekki þangað þar sem skilyrði til skógræktar eru áþekk þeim sem hér ríkja og reynsla og þekking á skógrækt og skógarumhirðu er meiri. Menn snúa gjarnan til baka úr slíkum ferðum með fullt af nýjum hugmyndum og fróðleik í farteskinu (og jafnvel fáein fræ til að pota í mold). Árlegar fræðsluferðir Skógræktarfélags Íslands eru gott dæmi um þetta en í þeim fræðast ferðalangar um skóga, sögu og náttúru viðkomandi lands undir leiðsögn heimamanna og staðkunnugra Íslendinga. Þær ferðir hafa verið nær árlegur viðburður í starfi Skógræktar- félags Íslands undanfarin 15 ár en áður en þær komu til sögunnar tíðkuðust svo kallaðar skiptiferðir Íslend- inga og Norðmanna. Ferðirnar hófust árið 1949 og voru farnar á þriggja ára fresti (síðar á fjögurra ára fresti) fram til aldamóta. Þær gengu í stuttu máli út á að hópur íslenskra skógræktarmanna fór til Noregs til fræðslu og starfa og annar hópur norskra skógræktar- manna kom til Íslands í sama tilgangi. Hákon Bjarnason, fyrrverandi skógræktarstjóri, lýsir tildrögum fyrstu skiptiferðarinnar vel í Ársriti Skógræktarfélags Íslands árið 1949. Upphaf og aðdragandi að komu norskra kvenna og manna hingað til lands vorið 1949 var á þá leið, að vorið 1948 kom Reidar Bathen fylkisskógarmeistari hingað til lands og dvaldist hér í fjórar vikur. Skömmu áður en hann fór, hittust þeir Torgeir Andersen-Rysst, sendiherra Norðmanna hér á landi, Reidar Bathen og Valtýr Stefánsson, form. Skógræktarfélags Íslands. Talið barst bæði að skógræktarmálum Íslands og gagnkvæmum kynnum Norðmanna og Íslendinga. Sendiherrann vildi auka persónuleg kynni milli þjóðanna og reyna, hvort eigi mætti um leið nota starfsorku þeirra, sem færu milli landa, til þess að gróðursetja skóg, jafnframt því sem ferðafólkinu væri gefinn kostur á að sjá nokkuð af landi og kynnast fólki. Með þessu var hugmyndin fengin að gagnkvæmum skiptum æskulýðs þessara tveggja landa, og sú hugmynd varð að veruleika vorið 1949, er 30 Norðmenn komu hingað með plöntur og fræ, en 31 Íslendingur fór til Tromsfylkis til að vinna að skóggræðslu og ferðuðust hóparnir loftleiðis báðar leiðir.i Hákon lýkur miklu lofsorði á Torgeir Andersen-Rysst, sendiherra Norðmanna, í greininni og segir að án hans hefði þetta aldrei getað orðið nema hugmyndin Upphaf skiptiferða norskra og íslenskra skógræktarmanna Norðmannareitur á Þingvöllum

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.