Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 70

Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 70
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201468 menntamálaráðherra, Ísafjarðarbæ garðinn til eignar. Ýmislegt annað má nefna svo sem að gengið var frá afsali og landamerkjum við landeigendur á Núpi en ekki hafði verið gengið formlega frá því á sínum tíma. Þá var unnið að gerð skipulagsskrár sjóðsins sem samþykkt var árið 2001 en þar kemur fram tilgangur og sá rammi sem Framkvæmdasjóðnum er sniðinn. Á þessum árum var einnig gefinn út kynningar- bæklingur á þremur tungumálum og þótti hönnun hans takast vel. Gerður var samningur við Ísafjarðarbæ árið 2002 er kveður á um skyldur og hlutverk hvors aðila fyrir sig en það samstarf hefur verið með miklum ágætum. Unnið var að gerð kvikmyndar um garðinn fyrir atbeina Gísla Gestssonar kvikmyndagerðarmanns og var hún sýnd í sjónvarpi árið 2002. Framkvæmdasjóð- urinn gaf út dagbók Sigtryggs árið 2004 og var sala á henni og fjáröflun vegna útgáfunnar og sölu bókar- innar nýtt til eflingar á Framkvæmdasjóði Skrúðs. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnaði og kostaði gerð deiliskipulags sem unnið var af Landformi ehf. en Oddur Hermannsson, sem áður hafði komið að framkvæmdum sem kennari við Garðyrkjuskólann, vann skipulagið. Unnið var að betrumbótum á aðkomu svæðisins, bætt bílastæði og stígar að garðinum en auk þess unnið að undirbúningi aðstöðuhúsnæðis sem reyndar hefur enn ekki komist til framkvæmda. Endurnýjaðir voru hvalbeinskjálkar sem mynduðu hlið á aðalás garðsins. Voru beinin orðin verulega feyskin og ekki hugað framhaldslíf en ákveðið var að freista þess að varðveita gömlu beinin. Myndaður var fimm manna þverfaglegur starfshópur sem vann að þessu verkefni á fjórða ár. Að ýmsu var að hyggja enda kom á daginn að beinin voru söguleg gersemi. Niðurstaðan varð að endingu sú að koma hinum gömlu beinum fyrir á verðugum stað í Náttúrugripa- safni Vestfjarða í Bolungarvík. Jafnframt voru fengin ný bein af langreyði sem eigendur Hvals ehf. gáfu sjóðnum. Voru hannaðar nýjar undirstöður og fest- ingar af Jakobi Líndal arkitekt en um niðurtöku og uppsetningu nýrra beina sá Sigmundur Þórðarson húsasmiður á Þingeyri. Þegar þessum nýju beinum hafði verið gert til góða voru þau vígð við hátíðlega athöfn 11. september 2012.4 Árið 2009 gaf Íslandspóstur út frímerki tileinkað Skrúði í tilefni þess að 100 ár voru frá því að garður- inn fékk nafngiftina Skrúður18. Merkið var hannað af Hany Hadaya sem getið hefur sér gott orð fyrir frumlega og fallega hönnun frímerkja. Á þessu tímabili, frá árinu 1992 til dagsins í dag, hafa stjórnarmenn í Framkvæmdasjóði Skrúðs ritað fjölda greina í blöð og tímarit og kynnt viðburði og markverð tímamót í fjölmiðlum. Öll sú vinna sem þar hefur verið innt af hendi hefur verið unnin í sjálf- boðavinnu. Framtíð Skrúðs Stjórn Framkvæmdasjóðs Skrúðs var frá upphafi höfð all stór til að fjölbreytt sjónarmið bæði lærðra og leik- manna fengju að njóta sín. Meiri háttar ákvarðanir eru yfirleitt ekki teknar nema að vel athuguðu máli. Megin verkefni sem fyrr verður að varðveita menn- ingarsögu garðsins og arfleið hans, um leið og horfa verður á þróun garðsins í takti við samtímann og breytingar sem verða á samfélaginu á hverjum tíma. Þessi samhenti hópur hefur klárað mörg stór verkefni en enn bíða úrlausnar viðfangsefni sem þarf að takast á við. Eitt er það sem hefur farið mikill tími í en það er fjármögnun viðhalds og umhirðu. Sá ásetningur sem í upphafi var markmið sjóðsins, að efna í svo stóran sjóð að vextir nægðu til að standa straum af öllum rekstri og viðhaldi, hefur ekki gengið eftir enda Hreiðra sig smávinir fagrir.Purpuraþistill (Cirsium hetrophyllum), eða imatrafíflill eins og Sigtryggur kallaði þessa jurt sem hann sótti sjálfur til Finnlands, vex með ágætum.

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.