Skógræktarritið - 15.10.2014, Síða 74

Skógræktarritið - 15.10.2014, Síða 74
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201472 Manning Seed Company situr eitt að fræsöfnun Árið 1954 fengu Íslendingar ekki leyfi bandarískra yfirvalda til frekari fræsöfnunar í Alaska. Mun sú ráðstöfun hafa verið að undirlagi fyrirtækisins Mann- ing Seed Company sem vildi sitja eitt að þessari söfnun. Næstu árin sömdu því íslenskir skógræktar- menn við fyrirtækið um fræsöfnun. Meðal annars stóð Manning Seed Company fyrir söfnun stafa- furufræs í nágrenni Skagway og naut þar liðsinnis heimamanna auk þess sem Ágúst Árnason, sem þá var við háskólanám í Kaliforníu, vann á þeirra vegum í Skagway haustið 1958. Skólabörn og skátar söfnuðu fræi í Skagway um tíma en áhuginn minnkaði og á endanum lagðist söfnunin af. Það var ekki fyrr en haustið 1963 að fulltrúi frá Manning Seed Company kom aftur til Skagway og óskaði eftir fólki til að safna stafafurufræjum. Bar hann því við að Íslendingar þyrftu nauðsynlega á þeim að halda vegna áætlunar sinnar um endurheimt skóglendis. Í þessu samhengi er vert að benda á að þetta sama ár gekk aprílhretið alræmda yfir landið en það lék illa skóga á Suður- og Vesturlandi. Þá hafði skógarfura, sem áður var algengasta furutegund í íslenskum skógum, farið illa úr lúsafaraldri upp úr 1960 og eyðst alveg á stórum svæðum. Síðast en ekki síst höfðu menn þá þegar góða reynslu af ræktun Skagway-stafafurunnar þó að ekki hefði hún verið íslenskur ríkisborgari í mörg ár þegar þarna var komið sögu. Skagway þar sem hann safnaði fræi af stafafuru og fjallaþini. Í ársriti Skógræktarfélags Íslands 1951-1952 lýsir Einar ferð sinni um nágrenni Skagway. Við Malcolm Hardy fórum árla morguns upp í fjallið austan við bæinn. Var það strembin ganga og lengra að leita þessara tegunda, en við ætluðum í fyrstu. Við fundum að lokum allmörg tré innan um sitkagrenið. Felldum við nokkur þeirra en klifruðum upp í önnur. Fremur varð okkur smátt til fanga. Fjallaþinurinn hafði borið fáa köngla, og vegna þess, hve áliðið var, voru fræin tekin að falla úr þeim. Stóð köngulprjónninn víða eftir nakinn. Contortafuran var líka með lítið af könglum, en þó náðum við í meira af henni. En illa tókst að þreskja könglana og fengum við því sáralítið fræ úr þeim.iv Þrátt fyrir að Einar G. E. Sæmundsen hafi ekki haft mikið upp úr krafsinu í Skagway, voru íslenskir skóg- ræktarmenn komnir á bragðið. Árið 1953 dvöldu þrír Íslendingar í Alaska um níu mánaða skeið og lögðu þar stund á margvíslega skógarvinnu. Þetta voru Brynjar Skarphéðinsson, Indriði Indriðason og Vilhjálmur Sigtryggsson en allir höfðu þeir lokið námi í Skóla Skógræktar ríkisins. Um haustið söfnuðu þeir félagar fræjum af ýmsum tegundum trjáa, runna og plantna. Þar á meðal var fyrsti stóri skammturinn af Skagway-stafafuru.v Af lýsingum samferðarmanna hennar að dæma var Barbara D. Kalen lífsglöð og þróttmikil kona sem undi sér best í náttúrunni. Mynd: Frá fjölskyldu Barböru Kalen
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.