Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 83
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 81
10. mynd. Trjáræktin í Deild við goslok í Eyjafjallajökli 2010.
Skammstafanir tegundaheita
Þegar tegundum fjölgar vex þörfin fyrir skráningu
og kortlagningu. Óhagræði er að þurfa ætíð að rita
plöntuheiti í fullri lengd og þegar færa þarf heiti
inn á kort er þar einfaldlega ekki rými fyrir löng
nöfn auk þess sem læsileiki kortsins minnkar. Til
þess að bæta úr þessu er hægt að nota staðlaðar
skammstafanir. Nokkur slík kerfi má finna á netinu
en eftir samanburð telur höfundur þessarar greinar
eftirfarandi kerfi hentugast og hefur því notað það
í nokkur ár. Kerfið er byggt upp af fjórum bók-
stöfum þar sem tveir fyrri stafirnir vísa til latnesks
heitis ættkvíslar en þeir tveir síðari til tegundaheitis.
Grunnurinn er fenginn úr grein sem Dr. Henri D.
Grissino-Mayer, frá landfræðideild háskólans í
Tennessee, ritaði fyrir nokkrum árum síðan um
árhringjafræði en tilvísunin er að öðru leyti töpuð.
Þar sem varla verður nokkurn tíma til tæmandi listi
með öllum tegundaheitum skiptir máli að upp-
bygging kerfisins sé svo einföld og skýr að hver
og einn geti byggt upp skrár til eigin afnota og
bætt inn nýjum heitum eins og þörf er fyrir. Það á
við um þennan kerfisgrunn. Þannig hefur þurft að
bæta inn heitum margra tegunda frá Evrópu og
Asíu til að ná inn öllum tegundaheitum í Deild.
Þinur (Abies) er fyrstur í kerfinu. Notast er við
fyrstu bókstafi ættkvíslar og tegundar. Þegar tvær
eða fleiri ættkvíslir hafa sömu upphafsbókstafi eins
og pinus og picea þá virðist algengari ættkvíslin
ráða. Pinus fékk því PI fyrir ættkvísl, en picea þurfti
að notast við þriðja bókstafinn, þ.e. C og ættkvíslar-
stafirnir fyrir picea verða því PC, eins og hér er sýnt:
Skammstöfun - Latneskt heit - Íslenskt heiti
ABSP* Abies Þinur -
ABAL Abies alba Evrópuþinur
ABAM Abies amabilis Silfurþinur
ABBA Abies balsamea Balsamþinur
ABCO Abies concolor Hvítþinur
ABFR Abies fraseri Glæsiþinur
ABGR Abies grandis Stórþinur
ABKO Abies koreana Kóreuþinur
ABLA Abies lasiocarpa Fjallaþinur
PCSP Picea Greni
PCAB Picea abies Rauðgreni
PCEN Picea engelmannii Blágreni
PCGL Picea glauca Hvítgreni
PCJE Picea jezoensis Japansgreni
PISP Pinus Fura
PIAR Pinus aristata Broddfura
PIBN Pinus banksiana Gráfura
PICE Pinus cembra Sembrafura
* SP er notað þegar tegund er ekki þekkt. Önnur frávik
sem snerta skráningu í íslenskri trjárækt eru sárafá,
aðallega ösp (skammstöfun fyrir Populus er PP) og
kirsi (Prunus er PN), sbr. eftirfarandi:
PPBA Populus balsamifera Balsamösp
PNAV Prunus avium Fuglakirsi