Skógræktarritið - 15.10.2014, Blaðsíða 85
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 83
fór því næst yfir reikninga félagsins. Guðbrandur
Brynjúlfsson, formaður Landgræðslusjóðs, fór svo yfir
skýrslu sjóðsins.
Að því loknu voru fram komnar tillögur til ályktunar
kynntar og þeim skipt á milli nefnda. Var Jónatan
Garðarsson, Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar, skipaður
formaður allsherjarnefndar, en Valgerður Auðuns-
dóttir, Skógræktarfélagi Árnesinga, formaður skóg-
ræktarnefndar. Að því loknu hélt Hannibal Hauks-
son ferðamálafulltrúi stutta kynningu á Akranesi og
var það síðasti dagskrárliður fyrir hádegismat. Eftir
hádegisverð fóru svo nefndastörf fram.
Að nefndastörfum loknum flutti Jón Guðmundsson
garðyrkjufræðingur erindi um eplarækt sína á Akra-
nesi. Einnig sagði Ásmundur Ólafsson leiðsögumaður
frá Akranesi. Að því loknu var haldið í vettvangsferð
um bæinn og nágrenni á vegum gestgjafanna.
Byrjað var á skoðunarferð um Akranesbæ, með
viðkomu í garði Jóns Guðmundssonar, en því næst
var haldið til Slögu, skógarreits Skógræktarfélags
Akraness í hlíðum Akrafjalls. Þar gengu fundargestir
um skóginn og Stefán Teitsson, fyrrverandi formaður
félagsins, sagði frá ræktun í reitnum. Loks var svo
haldið í Garðalund við Akranes, þar sem boðið var
upp á grillaðar pylsur og aðra hressingu.
Laugardagur 16. ágúst
Dagskrá laugardagsins hófst með fræðsluerindum.
Bjarni O.V. Þóroddsson, formaður Skógræktarfélags
Skilmannahrepps og Jens B. Baldursson, formaður
Skógræktarfélags Akraness, sögðu frá skógrækt í
nútíð og framtíð á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit.
Þorsteinn Hannesson, sérfræðingur hjá Elkem, fjallaði
um nýtingu viðar í framleiðsluferli Elkem, Þorbergur
Hjalti Jónsson fór yfir samstarf Skógræktar ríkisins
við Elkem, Halldór Sverrisson sagði frá helstu nýju
skaðvöldum í skógi og Else Möller fór yfir hvernig
bæta mætti gæði og magn jólatrjáa í ræktun hjá
skógræktarfélögunum. Arnheiður Hjörleifsdóttir,
varaoddviti í Hvalfjarðarsveit, sagði svo frá sínu
sveitarfélagi.
Að loknum hádegisverði var haldið í vettvangsferð
um Hvalfjarðarsveit. Byrjað var á að skoða garðinn
að Gröf, undir leiðsögn húsráðanda, Jóns Eiríkssonar
og Ruthar Hallgrímsdóttur. Að því loknu var haldið
að Álfholtsskógi, svæði Skógræktarfélags Skilmanna-
hrepps. Eftir gönguferð um skóginn undir leiðsögn
Bjarna O.V. Þóroddssonar söfnuðust fundargestir
saman og nutu veitinga og tónlistar í blíðskaparveðri.
Um kvöldið var boðið til hátíðarkvöldverðar í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands, er hófst með fordrykk í boði
Skógræktarfélags Íslands og sáu gestgjafar fundarins
svo um kvöldvöku, undir stjórn Gísla Gíslasonar. Fjórir
félagar í Skógræktarfélögum Akraness og Skilmanna-
hrepps voru heiðraðir fyrir störf í þágu skógræktar,
þau Bjarni O.V. Þóroddsson, Guðjón Guðmundsson,
Stefán Teitsson og Þóra Björk Kristinsdóttir. Einnig
voru þeim skógræktarfélögum sem áttu tugaafmæli
á árinu færðar árnaðaróskir Skógræktarfélags Íslands.
Var fulltrúi frá einu félagi viðstaddur – Páll Ingþór
Kristinsson, formaður Skógræktarfélags A-Húnvetn-
inga – og tók hann við skjali og myndarlegri alaska-
epliplöntu af því tilefni fyrir hönd síns félags.
Þorsteinn Tómasson jurtaerfðafræðingur færði einnig
Fundargestir samankomnir í skóginum í Slögu, ræktunarsvæði Skógræktarfélags Akraness í hlíðum Akrafjalls. Mynd: Einar Gunnarsson