Skógræktarritið - 15.10.2014, Page 86
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201484
gestgjöfunum, Skógræktarfélögum Akraness og
Skilmannahrepps, að gjöf plöntubakka með rauð-
blaða birki, sem hann vinnur nú að því að rækta
saman við íslenskt birki. Dagskrá lauk svo með balli
fram á nótt.
Sunnudagur 17. ágúst
Hefðbundin aðalfundardagskrá hélt áfram á sunnudag
með afgreiðslu reikninga sem voru samþykktir sam-
hljóða. Tólf tillögur að ályktunum voru bornar upp
á fundinum, eftir umræður og meðferð í nefndum.
Fjórum ályktunum var vísað til stjórnar til frekari
úrvinnslu. Samþykktar ályktanir á fundinum voru:
1. ályktun
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn á Akra-
nesi 15.-17. ágúst 2014, fagnar nýlegri samþykkt
tveggja þingsályktana á hinu háa Alþingi, annars
vegar „um eflingu skógræktar sem atvinnuvegar og
sameiningu stjórnsýslueininga á sviði skógræktar og
landgræðslu“ (211. mál) og hins vegar „um stefnu-
mótandi byggðaáætlun fyrir árin 2014–2017“ (256.
mál). Fundurinn væntir þess að samþykkt þeirra leiði
til hagnýtra rannsókna, þróunarstarfs og til eflingar
skógræktarstarfs á landsvísu og þess sjái stað í fjár-
lögum næsta árs.
2. ályktun
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn á Akra-
nesi 15.-17. ágúst 2014, fagnar því góða og árangurs-
ríka rannsóknastarfi sem unnið var að á árunum
2002-2006 í samstarfi Rannsóknastöðvar skógræktar
á Mógilsá, Náttúrufræðistofnunar Íslands og Land-
búnaðarháskóla Íslands, undir verkefninu „Skógvist“.
Meginmarkmið verkefnisins var að kanna breytingar
sem verða á lífríki, kolefnishringrás og jarðvegsþáttum
mólendis við skógrækt og þegar birkiskógur vex upp.
Þær niðurstöður sem hafa fengist með verkefninu
hafa verið nýttar af skógræktaraðilum til að skipu-
leggja skógræktarstarf þannig að neikvæð áhrif verði
sem minnst og ávinningur sem mestur fyrir bæði
menn og umhverfi. Mikilvægt er að fjármögnun fáist
til áframhaldandi rannsókna og vöktunar á langtíma-
áhrifum nýskógræktar á vistkerfi, en því miður
hefur niðurskurður á skógræktarrannsóknum og
rannsóknasjóðum síðustu árin gert það að verkum
Bjarni O.V. Þóroddsson, formaður Skógræktarfélags Skilmannahrepps, leiðir göngu um Álfholtsskóg. Mynd: RF