Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Side 9

Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Side 9
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.  Breytingar! Síðan síðasta Blað meina­ tækna kom út árið 2004 hafa örar breytingar einkennt líf og starf okkar félagsmanna. Breytingar til batnaðar. Við sem hímdum undir þungu skýi laga sem hindruðu okkur í að þróast sem fræðinga í heilbrigðisstétt og héldum ekki í við aðrar heilbrigðis stéttir í launaskriði árum saman tókum okkur til og breyttum ástand inu. Við erum á fullri ferð með breyt ingar í einu og öllu sem varðar störf okkar og kjör, allar hafa breytingarnar verið til batnaðar og enn skal breytt! Félag lífeindafræðinga er nú útgef andi Tímarits lífeindafræðinga. Nafn stéttarinnar er lífeindafræðingar og var því nýyrði fagnað mjög alla leið frá íslenskri málstöð til lækna deildar sem beið eftir nýju heiti á okkar fræðistétt. Fyrstu nemendur við geisla- og lífeindafræðiskor við læknadeild Háskóla Íslands eru að fara á annað ár í haust en í júní sl. lauk stór hópur eldri lífeindafræðinga við verkefni sín og útskrifast með B.S. gráður frá Háskólanum í Reykjavík. Við lífeindafræðingar eigum einnig þriðja- og fjórðaárs nema í þeim skóla en þar er ekki lögð áhersla á heilbrigð isvísindi á sama hátt og í HÍ og Háskól anum á Akureyri. Fyrrverandi meinatæknar voru aldrei sáttir við misskilning á námi þeirra vegna staðsetningar þess í Tækniskólanum þar sem annað nám þar krafðist ekki stúdentsprófs sem inntökuskilyrðis. Á meðan enn var erfitt að skilgreina störf okkar reynd um við nokkrum sinnum að skilgreina okkur sjálf sem „tæknifræðinga“. Það gekk ekki vel. Enda erum við ekki tæknifræðingar, við erum sérfræð ingar í heilbrigðisþjónustu og sem slík falla störf okkar undir Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Okkur til gæfu bæði í Tækniskól anum og síðar Tækniháskólanum fengum við nokkru ráðið um þróun náms okkar og sérstaklega ber að þakka fyrir veitta möguleika okkar til símenntunar, bæði endurmenntunar og viðbótarmenntunar, í þeim ágæta skóla. Háskólastéttir hafa ekki haft jafn greiðan aðgang að sambærilegri símenntun í öðrum háskólum. Við stöndum í þakkarskuld við þau sem á þessu skeiði komu að menntunar málum okkar og hlökkum jafnframt til þess að sjá styrka skor rísa í lækna deildinni. Ímynd lífeindafræðinga hefur breyst og við gerð stofnanasamning anna sem áttu að vera tilbúnir fyrir 1. maí 2006 kom þessi ímyndarbreyt ing sér vel. Nú þegar samið hafði verið um einn stofnanasamning fyrir allar þær stéttir innan BHM sem fyrir fundust á hverri stofnun fyrir sig (með tveimur undantekningum) gaus enn upp illþefjandi mismunun og tilraun til misréttis hjá ráðgjafateymi á vegum Fjármálaráðuneytisins. Þar á bæ lúrðu menn á starfagreiningu Hag stofu Íslands eins og ormur á gulli. Starfagreining Hagstofunnar er samt bara kerfi, kerfi hafa veikleika, sér staklega einn sem kallast „mannlegi þátturinn“. Í kerfi Hagstofunnar var það mannlegi þátturinn sem hafði skilgreint meinatækna með þjónustu stéttum eins og aðra „tækna“ á meðan skilgreindir fræðingar á heilbrigðis sviði lentu í öðrum starfaflokki. Hag stofustjóri hefur skrifað formanni Félags lífeindafræðinga bréf þar sem hann leiðréttir þessa flokkun. Lífeindafræðingar sátu hnarrreistir í sameiginlegum samstarfsnefndum innan þeirra heilbrigðisstofnana sem reka rannsóknastofur. Kom þá í ljós við samanburð á launakjörum heil brigðisstarfsmanna að lífeindafræð ingar voru með miklu lélegri laun en hinir. Þessi mikla launamismunun varð til þess að hluti þess fjár sem lagt var til gerðar stofnanasamninga, ásamt öðru því fé sem til hefur fallið við gerð samkomulagsins frá 2005 hefur farið til lífeindafræðinga fram yfir aðrar stéttir í tilraun til að jafna laun heilbrigðisstétta. Slagorðið „sam bærileg laun fyrir sambærileg störf“ hefur því skilað öðrum heilbrigðis stéttum minna en okkur. Það er sárt til þess að vita að áralangt óréttlæti í launamálum okkar skuli kosta sam starfsfólk okkar á heilbrigðisstofnun um minni launahækkanir en ella. Stærsti vinnustaður lífeindafræð inga er Landspítali háskólasjúkrahús (LSH). Formaður FL vill meina að skammstöfunin LSH standi fyrir Lág­ launasvæði höfuðborgarinnar. Það er mjög mikill launamunur hjá öllum heilbrigðisstéttum innan og utan LSH. Munar þar oft 4 launaflokkum fyrir sömu störf og stundum talsvert meira. Samt er það staðreynd að sá stofn anasamningur sem gerður var á LSH, Land­spít­alaleiðin, setur upp starfa flokkun sem aðrar stofnanir hafa tekið viðmið af enda er það breyting til slíks batnaðar að allir sem hafa skoðað hana fallast á rökin fyrir henni. Störf eru skoðuð og metin inn í fremur ein falt kerfi og er farið eftir starfslýsing um og skipuriti. Sambærileg störf hvort heldur er presta eða ljósmæðra, bókasafnsfræðinga eða hjúkrunarfræð inga var auðveldara að skilgreina en halda mætti. Það gekk vel að varpa nærri tvö þúsund starfsmönnum í þessa nýju starfaflokkun á LSH – nema lífeinda fræðingum! Áframhaldandi vandi líf eindafræðinga á LSH er afleiðing af Formannspistill Breyting á breytingu ofan

x

Tímarit lífeindafræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.