Tímarit lífeindafræðinga - jul 2006, Blaðsíða 22
22 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.
ónákvæmni og óáreiðanleika. Notuð er jafnan: heildaróvissa
= ± (2 x CV% + frávik í % frá gefnu gildi).
Hér hefur verið haldið í notkun hugtakanna ónákvæmni
og óáreiðanleiki sem þýðingu á „random error“ og
„systematic error“. Hins vegar hefur hugtakið „uncertainty“
verið að vinna á og það á að rúma alla óvissuþætti í
mæliniðurstöðum og ryðja þannig burt notkun á hugtakinu
„total error“ og skiptingu þess í „random error“ og
„systematic error“.
Niðurstöður
Mæld voru 100 sjúklingasýni með þremur mæliaðferðum
fyrir S-kreatínín. Annars vegar voru sýnin mæld á Vitros
950 hjá LSH-Hb og hins vegar á Hitachi 912 hjá KLH með
Jaffé kínetískri aðferð og ensímatískri aðferð frá Roche.
Niðurstöður voru bornar saman með útreikningum á línu
legri aðfallsgreiningu (linear regression) og fylgnistuðull
reiknaður. Mæligildin spönnuðu bilið frá 25 – 850 µmól/L
en í töflu I má sjá jöfnur fyrir línulegt aðfall og fylgnistuðul.
Fylgnin reyndist mjög góð, fylgnistuðull yfir 0,99 í öllum
tilvikum. Hliðrunarskekkju má meta út frá skurðpunkti við
y-ás, hallatölu á línulegu aðfallslínunni og mismun milli
miðtölu og meðaltals aðferðanna þriggja, sjá töflu II.
Tafla I. Samanburður þriggja aðferða við mælingar á
S-kreatíníni.
Mæld voru 100 sjúklingasýni með þremur aðferðum. Tvær aðferðir frá
Roche, Jaffé kínetísk og ensímatísk aðferð mældar á Hitachi 912 hjá
KLH, voru bornar saman við ensímatíska aðferð frá Ortho Diagnostics
mælt á Vitros á LSH-Hb. Ennfremur var gerður samanburður á Roche
aðferðunum tveimur. Reiknað í Excel.
Línuleg aðfallsjafna Fylgnistuðull R2 Skurðpunktur
við y-ás
Ortho vs Jaffé Roche y = 0,9784x - 1,87 0,9955 -1,87
Ortho vs Roche y =0,9667x + 0,91 0,9991 0,91
Roche vs Jaffé Roche y = 1,0112x - 2,43 0,9962 -2,43
Tafla II. Miðtala, meðaltal og mælisvið mæliaðferðanna þriggja,
kreatínín µmól/L.
Miðtala Meðaltal Mælisvið
Ensímatísk Ortho 82 141,7 25-834
Ensímatísk Roche 81 137,9 24-829
Jaffé kinetísk Roche 79 136,7 21-886
Aðferðirnar voru einnig bornar saman með mismunagrafi
þar sem mismunur tveggja mæliaðferða yfir mælisviðið er
sýndur til að kanna nánar hversu mikil og hvers eðlis
hliðrunin milli mæliaðferða er, sjá myndir 1 til 3. Mismunur
á mæliaðferðum er meira áberandi á háum mæligildum en
upp að 180 µmól/L er hann vel innan ±10 µmól/L marka
nema í Ortho og Jaffé kínetíska samanburðinum þar sem
mest dreifing er á mæligildum. Á mynd 2 þar sem munur
á ensímatísku aðferðunum er skoðaður sést að ensímatísku
aðferðunum tveimur ber betur saman en Jaffé aðferðinni
og þeim ensímatísku. Á hærri gildum verður munurinn
meira áberandi og Ortho aðferðin gefur hærri niðurstöður
á öllum mæligildum yfir 120 µmól/L.
Mismunagröf
Myndir 1 til 3 eru mismunagröf sem sýna samanburð á
mæliaðferðum fyrir S-kreatínín, ensímatískri mæliaðferð
frá Ortho Diagnostics og tveimur frá Roche: Jaffé kínetísk
og ensímatísk mæliaðferð.
Samanburður á Jaffé kínetískri aðferð frá Roche
og ensímatískri aðferð frá Ortho
y = -0,0062x - 3,1906
R2 = 0,0146
-40
-30
-20
-10
0
10
20
30
40
0 100 200 300 400 500 600 700 800 900
Kreatínín mælt með ensímarískri aðferð frá Ortho, µmól/L
ehco
R árf ðre fða irks íte ník e ffaJ á ru nu
ms i
M
L/lo
mµ ,oht r
O árf irksíta
mísne go
Mynd 1. Samanburður á kreatínínmælingum: Jaffé kínetískri
aðferð frá Roche, mælt á KLH, og ensímatískri aðferð frá Ortho,
mælt á Vitros LSD-Hb.
Samanburður á ensímatískum kreatínín mæliaðferðum
y = -0,0333x + 0,9145
R2 = 0,5731
-40
-30
-20
-10
0
10
20
30
40
0 100 200 300 400 500 600 700 800 900
Kreatínín mælt með ensímarískri aðferð frá Ortho, µmól/L
go ehco
R árf ðre fða irksít a
mísne á ru nu
m si
M
L/ ló
m
µ ,ohtr
O ár f ðr efða i rksí ta
mís ne
Mynd 2. Samanburður á ensímatískum kreatínínmælingum
gerðum á LSH-Hb og KLH hinsvegar: Aðferð frá Roche, mælt á
Hitachi 912 á KLH, og aðferð frá Ortho, mælt á Vitros á LSD-Hb.
Samanburður á Jaffé kínetískri og ensímatískri aðferð frá Roche
y = 0,0256x - 3,9623
R2 = 0,2166
-40
-30
-20
-10
0
10
20
30
40
0 100 200 300 400 500 600 700 800 900
Kreatínín mælt með ensímatískri aðferð frá Roche, µmól/L
irksíta
mí sne go ir ks ítení k éffa J á runu
msi
M
L/lo
m
µ , ehco
R árf ðrefða
Mynd 3. Samanburður á kreatínínmælingum: Jaffé kínetískri
aðferð frá Roche og ensímatískri aðferð frá Roche, mælt á KLH.
Grein / gaukulsíunarhraði