Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Page 24
24 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.
karla. Lægstu og hæstu gildi kvenna eru 40 og 652 µmól/L
og 17,6% hópsins mælist með gildi yfir 90 µmól/L sem eru
efri viðmiðunarmörk í notkun fyrir konur (sjá töflu III).
Þetta eru viðmiðunarmörk sem unnin voru í samnorræna
verkefninu á árunum 2002 - 2004.
Tafla III. Fjöldi karla og kvenna í % af heild með skerta nýrnastarfsemi
metið út frá viðmiðunarmörkum á S-kreatíníni.
Ofan
viðmiðunarmarka
Viðmiðunarmörk
µmól/L
Karlar % af heild 33,7 60 - 100
Konur % af heild 17,6 50 - 90
Til samanburðar var ákveðið að reikna áætlaðan GSH með
því að beita reiknijöfnunum þremur og kanna hvort þátt
takendur skiptust svipað í hópa með skerta nýrnastarfsemi
út frá áætluðum GSH. Þar er miðað við að GSH milli 30
- 60 sé flokkaður sem skert nýrnastarfsemi en undir 30
sem alvarleg nýrnabilun og endastigs nýrnabilun með GSH
undir 15 ml/mín/1,73m2 [3]. Á mynd 7 sést hvernig áætl
aður GSH reiknaður með jöfnu 1 dreifist hjá þessum 3018
einstaklingum úr Öldrunarrannsókninni. Áætlaður GSH var
einnig reiknaður með hinum jöfnunum tveimur. Nokkur
hliðrun var á gröfunum eins og sjá má í samanburði á
niðurstöðum á meðaltali og staðalfráviki í töflu IV og
línulegri aðfallsgreiningu á mynd 8 og 9.
Tafla IV. Samanburður þriggja reiknijafna við að áætla GSH.
Meðaltal og staðalfrávik áætlaðs GSH eftir því hver af jöfnunum
þremur er notuð.
Meðaltal Staðalfrávik Fjöldi
Jafna 1 72,73 ml/mín/1,73 m2 19,40 3018
Jafna 2 66,62 ml/mín 21,75 3018
Jafna 3 70,85 ml/mín/1,73 m2 18,54 3018
Jöfnur 1 og 3 gefa mjög svipaðar niðurstöður, meðaltal
áætlaðra GSH gilda er tæplega 2 lægri með jöfnu 3 heldur
en 1 og dreifingin ívið þrengri. Hliðrun á áætluðum GSH
meðaltali sem reiknað er með jöfnu 2 er hins vegar
töluvert lægri og munar þar 6 á meðaltali borið saman við
gildi úr jöfnu 1 sjá Töflu IV. Dreifingin er líka heldur meiri
en með hinum reiknijöfnunum tveimur en jafna 2 tekur
þyngd einstaklinga með í reikninginn. Hafa ber í huga að
hér er heildarþyngd tekin en ekki vöðvamassi.
Ekki er unnt að meta hvaða jafna gefur okkur traustastar
upplýsingar um áætlaðan GSH nema bera útreiknaðar
niðurstöður beint saman við mældan GSH. Við höfum
þegar sýnt að jafna 1 gefur ekki sérlega góða samsvörun
við mældan GSH en höfum ekki þau gögn sem þarf til að
svara því hvort jafna 2 er raunhæfari kostur. Samkvæmt
öllum þremur reiknijöfnunum flokkast samt sem áður
fleiri konur en karlar með skerta nýrnastarfsemi og þarf að
kanna nánar í hverju þetta misræmi felst. Reikniformúla 2
Áætlaður GSH í ml/mín/1,73 m2
ag
nil
kats
nie i
dl
öj
F
14012010080604020
350
300
250
200
150
100
50
0
Mean72,73
StDev19,40
N3018
Normal
Dreifing á áætluðum GSH reiknuðum samkvæmt jöfnu 1
Mynd 7. Myndin sýnir dreifingu á áætluðum GSH reiknuðum
samkvæmt jöfnu 1. Um er að ræða 3018 einstaklinga þar sem
meðalaldur er 77 ár.
Samanburður á reiknuðum áætluðum GSH samkvæmt jöfnum 1 og 3
y = 0,939x + 2,5593
R2 = 0,9654
0
20
40
60
80
100
120
140
160
0 20 40 60 80 100 120 140 160
Áætlaður GSH samkvæmt jöfnu 1
3 unföj t
m
ævk
mas
H
S
G ruðalt
æ
Á
Mynd 8. Hér er gerður samanburður með línulegri aðlögun á
áætluðum GSH milli útreikninga með jöfnu 1 og jöfnu 3. Þeim ber
mjög vel saman.
Samanburður á reiknuðum áætluðum GSH samkvæmt jöfnum 1 og 2
y = 0,8125x + 7,5269
R2 = 0,525
0
20
40
60
80
100
120
140
160
0 20 40 60 80 100 120 140 160
Áætlaður GSH samkvæmt jöfnu 1
2 unföj t
m
æv k
mas
H
S
G r uðalt
æ
Á
Mynd 9. Hér er gerður samanburður með línulegri aðlögun á
áætluðum GSH milli útreikninga með jöfnu 1 og jöfnu 2. Jafna
2 þar sem þyngd einstaklinga er tekin með í reikninginn gefur
umtalsvert lægri áætlaðan GSH en jöfnur 1 og 3 auk þess sem
dreifing á gildum er þar mun meiri.
Grein / gaukulsíunarhraði