Tímarit lífeindafræðinga - jul 2006, Blaðsíða 29

Tímarit lífeindafræðinga - jul 2006, Blaðsíða 29
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 29 Steinunn Oddsdóttir 2,8-díhýdroxýadenín (2,8-DHA) kristallar eru oft bara kallaðir „Jóhönnukristallar“ meðal lífeindafræðinga í höfuðið á Jóhönnu Jónas dóttur lífeindafræðingi sem fyrst uppgötvaði þessa kristalla í þvagbotnfalli hér á landi árið1983. Jóhanna minntist þess að hafa séð þessa hnattlaga, rauðbrúnu kristalla um 14 árum áður en enginn vildi gefa því gaum þá. Síðar komst hún að því að sjúklingurinn hafði misst annað nýrað vegna steinamynd unar. Nú gaf Jóhanna sig ekki og fékk Þröst Laxdal barnalækni í lið með sér og þau sendu kristallabotnfall úr sólarhringsþvagi til greiningar á efnaskiptarannsóknastofu á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Þar voru kristallarnir greindir með gaskrómatógrafíu/ massaspektrómetríu sem 2,8-DHA. Þessi greining benti til skorts á hvatanum adenín- posphoribosyltransferasa (APRT). Þá var sent blóð til mælingar á hvatanum í rauðum blóðkornum og greiningin var staðfest. Í púrínefnaskiptum getur adenín ekki breyst í adenósín-mónófosfat heldur oxast það af xanthínoxídasa yfir í 8-hydroxyadenín og síðan í 2,8-DHA. APRT-skortur eða 2,8-DHA- miga er arfgengur, víkjandi sjúkdómur sem getur verið lífshættulegur vegna hættu á steinamyndun í þvagfærum og nýrnabilun en hið torleysta 2,8-DHA hefur eiturverkun á nýru. Sjúklingar með APRT-skort verða að auka vökvaneyslu og takmarka neyslu á púrínríkri fæðu auk þess að vera á allópúrínól- lyfjameðferð alla ævi. Allópúrínól hindrar verkun xanthínoxídasa og þar með myndun 2,8-DHA [1,2]. Stökkbreytingin (sjúkdómssamsætan) D65V virðist vera eini orsakavaldur APRT- skorts hér á landi. Árið 1998 þróaði Gunn laug Hjaltadóttir lífeindafræðingur einfalda erfðagreiningaraðferð, fjölliðunarhvarf (Poly merase Chain Reaction, PCR), fyrir þessa stökkbreytingu [3]. Alls hafa fundist í heiminum meira en 300 sjúklingar með APRT-skort [5] og við Ís lendingar eigum heimsmet í þessum sjúk dómi ef miðað er við höfðatölu, sjúklingarnir eru nú 28 [6]. Meirihluti íslenska hópsins er rauðhærður [7]. Stökkbreytingin D65V barst 2,8-díhýdroxýadenín kristallar – nýleg tilfelli 9 Grein / 2,8-DHA kristallar Höfundur er deildarlífeindafræðingur á Blóðmeinafræðideild Landspítala Háskólasjúkrahúss. steinodd@landspitali.is Lykilorð: 2,8-DHA kristallar, APRT-skortur. hingað til lands líklega frá Bretlandseyjum; við erum fámenn þjóð og skyld og skýrir það fjölda sjúklinga [3]. Þess má geta að Viðar Eð varðsson, sérfræðingur í nýrnalækningum barna, heldur utan um þessa sjúklinga hér á landi en hann tók við því starfi af Þresti Laxdal. Jóhönnu og Þresti er það að þakka að sjúkdómurinn var fyrst greindur hér á landi. Nýlega var greint frá fyrsta tilfellinu í Noregi en þar hafði nýrnasteinn verið efna greindur sem 2,8-DHA en ekkert var minnst á kristalla í þvagi [8]. Árið 1988 var greint frá einu sjúkdómstilfelli APRT-skorts í Finnlandi og aðeins minnst á nýrnastein [9]. Bergljót Halldórsdóttir lífeindafræðingur hélt fyrirlestur í mars síðastliðnum á nám skeiði í smásjárskoðun á þvagi fyrir lífeinda fræðinga í Álasundi í Noregi. Hann var um Jóhönnukristalla og sýndi hún ótal myndir af þeim. Hún hafði tekið með sér þvagsýni að heiman og sýndi þeim kristallana einnig í smásjá. Í norska lífeindafræðingablaðinu Bioingeniören 5-2006 birtist grein um þenn an fyrirlestur Bergljótar. Ef farið er inn á vefslóðina: http://www.nito.no/dm/public/ 105562.PDF má sjá allt norska blaðið og á forsíðu þess er mynd af 2,8-DHA kristöllum í pólaríseruðu ljósi (p.l.). Skömmu áður en blaðið fór í prentun fengum við hér á Blóðmeinafræðideildina við Hringbraut þvagsýni frá Fjórðungssjúkrahús inu á Akureyri (FSA). Guðrún Erlendsdóttir lífeindafræðingur þar hafði verið að skoða þvagsýni frá fjögurra ára stúlku og taldi sig sjá ammoníumbíuratakristalla. Hún fékk síðan eftirþanka og skoðaði sýnið aftur og fannst þeir líkjast 2,8-DHA kristöllum. Hún hringdi þá í mig og ég sagði henni að ef þetta væru ammoníumbíuratakristallar þá myndu þeir leysast upp í 33% ediksýru og síðan myndu trúlega myndast þvagsýrukristallar [4]. Ég lét þess einnig getið að öruggara væri að láta blönduna bíða til morguns. Hún gerði þetta en engin breyting varð á kristöllunum (mynd 2). Þá bað ég hana um að senda mér þvagsýnið. Þetta reyndust vera dæmigerðir 2,8-DHA kristallar (mynd 1). Ég ætla að minnast hér á síðustu fjögur kristallatilfellin sem hafa komið inn á borð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lífeindafræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.