Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Page 31

Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Page 31
 Hún var sett á allópúrínól en þoldi lyfið ekki. Verið er að þróa ný lyf fyrir þessa sjúklinga en þangað til verður hún að vera dugleg að neyta vökva og forðast púrínríka fæðu. Mynd 6. Á myndinni má sjá ógrynni af litlum 2,8-DHA kristöllum en fyrir miðju er einn stærri sem líkist þverskurði af tré, x400. Mynd 7. Á öðrum stað í þvagbotnfallinu sáust hins vegar stærri 2,8- DHA kristallar, x400. Kristallatilfelli 4 Þvagsýni barst í hefðbundna þvagrannsókn frá Bráða móttöku LSH. Sýnið var frá 56 ára konu en hún hafði verið rauðhærð sem unglingur. Konan var með alvarlega nýrna bilun, kreatínín í sermi mældist 327 µmól/L og breiðar muddy brown afsteypur1 sáust í þvagbotnfalli. Hún var einnig með greinilega þvagfærasýkingu, mikið af hvítum blóðkornum og staflaga bakteríum í þvagi. CRP í sermi var 206 mg/L. Ógrynni af 2,8-DHA kristöllum af öllum stærðum sáust í þvagbotnfalli hennar (mynd 8). Minni gerðirnar sýndu Möltukross í p.l. (mynd 9B). Mynd 8. Dæmigerðir 2,8-DHA kristallar í muddy brown afsteypu, x400. Mynd 9 A og B. Mynd A til vinstri sýnir einn stóran 2,8-DHA kristall fyrir miðju, sá er ekki í fókus. Í kringum hann eru litlir 2,8- DHA kristallar eins og dropar. Á mynd B til hægri er sami sjónflötur sýndur í p.l., litlu kristallarnir sýna Möltukrossa, x400. Lokaorð Lífeindafræðingar hér á landi hafa verið duglegir við að finna 2,8-DHA kristalla en flestir sjúklingarnir hafa fundist við venjulega þvagsmásjárskoðun. Verum áfram dugleg að bæta við þekkingu okkar á kristöllunum en eins og sjá má af myndunum hér að framan líta þeir ekki alltaf eins út í smásjánni. Höfum hugfast að kristallarnir geymast vel en til marks um það eru myndir nr. 8 og 9. Þessar myndir voru teknar fyrir skömmu en tilfellið fannst fyrir einu og hálfu ári. Þvagbotnfall frá sjúklingnum hafði verið geymt í ísskáp frá þeim tíma. Endanleg greiningaraðferð á APRT-skorti eða 2,8-DHA- migu er skimun eftir sjúkdómssamsætunni D65V sem framkvæmd er á Erfða- og sameindalæknisfræðideild LSH. Heimildir 1. Laxdal Þ, Jónasdóttir J. Varhugaverðir þvagkristallar eða 2,8- dihydroxyadeninuria. Blað meinatækna 1990; 18(1): 9-13. 2. Oddsdóttir S. Rannsóknir á þvagi skólabarna. Blað meinatækna 1996; 23(1): 12-6. 3. Hjaltadóttir G. Adenín fosfóríbósyl transferasaskortur á Íslandi. Blað meinatækna 1998; 25(2): 6-13. 4. Halldórsdóttir B, Oddsdóttir S. 2,8-Dihydroxyadeninmiga á Íslandi. Blað meinatækna 2003; 30(1): 20. 5. Arnadóttir M, Laxdal Th, Halldorsdottir B. 2,8-Dihydroxyadeninuria: Are there no cases in Scandinavia?. Scandinavian Journal of Urology and Nephrology 2005; 39: 82-6. 6. Árnadóttir M. Munnleg heimild. 2006. 7. Edvardsson V, Palsson R, Olafsson I, Hjaltadottir G, Laxdal Th. Clinical features and Genotype of Adenine Phosphoribosyltransferase Deficiency in Iceland. American Journal of Kidney Diseases 2001; 38(3): 473-80. 8. Bliksrud YT, Woldseth B, Bangstad HJ. Adeninfosforibosyltransfer ase-mangel (APRT-mangel)-radiolucent nyrestein. Klinisk Biokemi i Norden 2005; 17(3): 36-37. 9. Usenius JP, Ruopuro ML, Usenius R. Adenine phosphoribosyltrans ferase deficiency: 2,8-dihydroxyadenine urolithiasis in a 48-year-old woman. Br J Urol. 1988; 62(6): 521-4. TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 31 Grein / 2,8-DHA kristallar _________ 1 Öðru nafni nýrnabilunarafsteypur (áður voru afsteypur kallaðar cylindrar).

x

Tímarit lífeindafræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.