Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Page 36
36 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.3
Vinnustaðir eru menningarsvæði.
Fagstéttir tala tungumál sem þróast á
þeirra menningarsvæðum. Í tungumáli
lífeindafræðinga er til dæmis orðið
„graderuð“ notað um pípettu en rúm
mál pípetta er mælt og vegið reglu
lega til að komast að því hvort þær
séu rétt graderaðar.
Lífeindafræðingar sem hafa gömul
próf úr Tækniskólanum hafa undan
farin ár streymt í Tækniháskólann og
nú Háskólann í Reykjavík til þess að
vinna sér inn BS gráður. Í sjálfu sér er
vinna þeirra óþörf ef litið er til launa
mála því að allar fagstéttir sem hafa
þróast líkt og okkar njóta sólarlags
ákvæða. Gamalt próf er jafnverðmætt
því yngra þótt það sé oftast lengra og
innihaldi fleiri háskólaeiningar. Gam
alt próf er nákvæmlega jafn mikils
virði til nýráðningar til starfa og nýrra
próf. BS gráðan er ef til vill ekki
metin á nokkurn hátt þannig að hún
sé í askana látin en er samt eftir
sóknarinnar virði vegna þess að alltaf
má læra eitthvað nýtt og gagnlegt.
Hún er ávísun á möguleika til fram
haldsnáms ef lífeindafræðinginn
skyldi langa til að bæta á sig verkefnum
til meistaragráðu eða doktorsgráðu.
Vegna sameiningar Tækniháskól
ans og Háskólans í Reykjavík hafa
útskriftir breyst. Formanni félagsins
okkar var alltaf boðið á útskriftir hóps
ins hjá Tækniháskólanum og gat þá
komið blómagjöf til nýútskrifaðra og
boðið þau velkomin í hópinn okkar.
Þar sem þessi siður lagðist niður í vor
datt formanni í hug að halda kaffisam
sæti með „nýgraderuðum lífeindafræð
ingum“ svo þær fengju að hittast í eitt
sinn sem hópur. Við hittumst í
koníaksstofunni á Hótel Holti á
þriðjudagssíðdegi og spjölluðum yfir
kaffi og einhverju gómsætu.
Það er samdóma álit þeirra sem
þar mættu að samræðurnar voru
forvitnilegar og að margt óvænt kom
fram. Til dæmis er mikill munur á við
horfi ungu lífeindafræðinganna gagn
vart vinnutíma og vinnuumhverfi. Ein
þeirra er strax komin í meistaraverkefni
í ónæmisfræði og væntum við þess að
henni gangi vel að festa sig í sessi
innan sviðs heilbrigðisvísinda. Hinar
tvær kjósa að starfa hjá Íslenskri
erfðagreiningu þar sem þær hafa
sveigjanlegan vinnutíma sem er
sveigjanlegur dag frá degi og þurfa
aðeins að vinna þær 40 klst. sem
þeim ber að skila í vinnuvikunni.
Önnur þeirra er nú í sumarvinnu á
Sýklafræðideild LSH og henni hraus
hugur við því að binda sig á slíkum
vinnustað. Þar ríkir angist vegna álags
ins, reiði vegna kjaranna og uppgjöf
vegna þess að illa gengur að fá leið
réttingar á því sem lífeindafræðingar
sem starfa á deildinni þjást af.
Margt annað var rætt og er það
augljóst að slík kaffisamsæti eru kom
in til að vera. Í þessum fyrsta útskriftar
hópi lífeindafræðinga með BS frá Há
skólanum í Reykjavík voru Arna
Stefánsdóttir, Hrefna Gunnarsdóttir
og Thelma B. Róbertsdóttir og enn
fremur Anna Svanhildur Sigurðardóttir,
Guðrún Schmidhauser, Kristín Ása
Einarsdóttir, Margrét Ágústsdóttir og
Sigrún Kristjánsdóttir sem allar voru
með gömul próf í meinatækni en eru
nú „endurgraderaðar“. Brynja R. Guð
mundsdóttir og Líney Símonardóttir
voru að útskrifast með meistaragráðu
í lífeindafræði frá læknadeild Háskóla
Íslands. Ljósmynd var tekin af hópnum
en á hana vantar Sigrúnu og Líneyju
sem gátu ekki mætt í kaffisamsætið.
Kristín Hafsteinsdóttir
formaður FL
Nýgraderaðar!
Skólamál / félagsmál
Þær sem mættu í kaffisamsætið, frá vinstri: Kristín Ása Einarsdóttir, Margrét Ágústsdóttir,
Anna Svanhildur Sigurðardóttir, Brynja R. Guðmundsdóttir, Arna Stefánsdóttir, Thelma
B. Róbertsdóttir, Hrefna Gunnarsdóttir og Guðrún Schmidhauser. Kristín Hafsteinsdóttir
formaður FL tók myndina.