Tímarit lífeindafræðinga - jul. 2006, Blaðsíða 40
40 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.
Meistararitgerð / nám
Eftir mjög svo áhugavert og skemmtilegt nám
í lífeindafræði við Tækniháskóla Íslands vakn
aði enn meiri áhugi á að fara utan í frekara
nám. Nám í sameindalíffræði lá beint við eftir
að hafa lokið B.Sc. verkefni hjá Urði Verðandi
Skuld í janúar 2002. Langþráður draumur um
að verða námsmaður í Danmörku varð að
veruleika haustið 2002 þegar ég hóf nám í líf
efnafræði og sameindalíffræði við Háskólann í
Óðinsvéum (Syddansk Universitet).
Meistaranám við
Háskólann í Álaborg
Náminu var skipt í eitt ár bóklegt nám og eitt
til eitt og hálft ár verklegt nám þar sem unnið
er að meistaraverkefninu sjálfu. Bóklega nám
ið fór fram á ensku og var um fjölmörg fög að
velja bæði fyrirlestra og verklegt nám.
Frjálst var að taka meistaraverkefnið hvar
sem var, innanlands jafnt sem erlendis, og
valdi ég verkefni við Háskólann í Álaborg
(Aalborg Universitet). Verkefnið sem ég fékk
bar titilinn: „Oxygen Tension Effects on
Factors Involved in Development of Hep
atitis B Virus Associated Liver Tumors“ sem
mætti þýða: Áhrif súrefnisþrýstings á þætti
sem hafa áhrif á þróun lifraræxla tengdum
Hepatitis B vírus.
Stór hluti verkefnisins var að þróa aðferð
til að skoða genatjáningu lifrarfruma sem
einangraðar voru úr lifrarbólgu B frumum og
lifrarkrabbameini. Stór áhættuþáttur þeirra
sem smitaðir eru af lifrarbólgu B er að fá
skorpulifur og lifrarkrabbamein síðar á ævinni.
Rannsóknir hafa einnig sýnt að slík æxli og
skorpulifur eru súrefnissnauð og því var
þróuð DNA örflögu aðferð (DNA Microarray)
til að bera saman genatjáningu fruma sem
ræktaðar voru við 1% súrefni og hins vegar
við 21% súrefni. Við gáfum okkur að normal
gildi súrefnis í frumum sé 21%. Um 50 gen
voru þekkt sem sýndu breytingu á tjáningu
við 1% súrefnis en í þessu verkefni voru
skoðuð um 10.000 gen samtímis.
Með auknu aðgengi og þekkingu á gena
upplýsingum síðustu tvo áratugi eftir að kort
lagning genamengis mannsins hófst hafa
DNA örflögur haft umtalsverð áhrif í heimi
lífvísinda og gert vísindamönnum kleift að
skoða genatjáningu þúsunda gena samtímis.
Ég vann að þessu verkefni í rúmt eitt og
hálft ár, skrifaði svo ritgerð og varði verkefnið
fyrir leiðbeinendur og prófdómara. Þessi
vinna að verkefninu var bæði gríðarlega spenn
andi og krefjandi. Skipuleggja þurfti verk
efnið vel og sýna sjálfstæð vinnubrögð. Í
hverjum mánuði hélt ég svo fyrirlestur um
gang verkefnisins fyrir aðra starfsmenn deild
arinnar og svaraði spurningum tengdum því.
Helstu niðurstöður
Helstu niðurstöður þessa verkefnis voru að
þær frumur sem ræktaðar voru við 1% súrefni
fjölguðu sér minna og sýndu allt annað tján
ingamunstur á þúsundum gena en þær frumur
sem ræktaðar voru við 21% súrefni. Athyglis
vert er í framtíðinni að skoða betur þessi gen
og hvaða áhrif þau geta haft á myndun krabba
meins í þeim sjúklingum sem smitaðir eru af
lifrarbólgu B.
Lokaorð
Þessi námsár mín í Danmörku voru mjög krefj
andi og skemmtileg og tel ég mig nú búa yfir
mjög góðri þekkingu og reynslu á mínu sviði
sem sameindalíffræðingur. Danmörku kvaddi
ég svo með söknuði sumarið 2005 þegar ég
flutti aftur til Íslands og hóf störf hjá Nimb
leGen Systems á Íslandi sem starfrækt hefur
verið hér á landi síðan árið 2002. NimbleGen
hefur þróað genaörflögutækni til erfðafræði
rannsókna til að skoða samband milli gena
starfsemi og sjúkdóma og sinnir þjónusturann
sóknum á sviði örflögutækninnar hér á Íslandi.
Það er engin spurning um að ég fékk starf hjá
NimbleGen sem hentaði mér eftir að hafa
lokið námi í sameindalíffræði.
Hvet ég því alla til að fara í framhaldsnám
og öðlast enn frekari þekkingu á því sviði þar
sem áhugi hvers og eins liggur.
Um nám og
meistararitgerð
sem varin var við
líffræðideild
Háskólans í Álaborg,
ágúst 2005.
Höfundur starfar hjá
NimbleGen Systems
á Íslandi.
birna@nimblegen.com
Birna
Berndsen
Áhrif súrefnisþrýstings á þætti sem
hafa áhrif á þróun lifraræxla tengdum
Hepatitis B vírus