Tímarit lífeindafræðinga - jul 2006, Qupperneq 42
42 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.
Meistararitgerð / ágrip
Áður en sjúklingur er tengdur við hjarta-
og lungnavél þarf að lofttæma slöngu
kerfið sem flytur blóð sjúklings að og frá
vélinni. Lofttæming er gerð með því að
vökvafylla slöngur og gervilunga með svo
kölluðum prime vökva en þessi viðbætti
vökvi, snerting blóðsins við plastefni kerf
isins og inngripið sem aðgerðin sjálf er
veldur því að bólgusvar og vökvaupp
söfnun verður í öllum líkamanum. Fyrri
rannsóknir okkar hafa sýnt að þrýstingur í
vöðvahólfi hækkar marktækt og helst
hækkaður að minnsta kosti í einn sólar
hring eftir aðgerðina þó svo colloid osmót
ískur þrýstingur sé orðin eðlilegur.
Markmiðið með þessari rannsókn var í
fyrsta lagi að athuga hvort eitthvað af eftir
farandi þáttum geti minnkað þrýstings
breytingu og bólgusvörun og í öðru lagi
að athuga hvort fylgni sé á milli þrýstings
breytinga í vöðvahólfi og auga.
Alls var 36 kransæða- ósæðalokusjúk
lingum skipt í fjóra hópa eftir slembivals
töflu. Hjá hópi A var albúmíni og mannit
óli bætt út í prime vökva hjarta- og lungna
vélarinnar. Hópur B fékk heparínhúðað
slöngukerfi og gervilunga. Hjá hópi C var
sett hvítfrumusía inn í slöngukerfið og
hópur D var viðmiðunarhópur. Þrýstingur
í vöðvahólfi var skráður fyrir aðgerð og
samfleytt í einn sólarhring. Augnþrýstingur,
colloid osmótískur þrýstingur, fjöldi hvít
fruma, komplement C3d og TNF� var
skráð eða blóðsýni mæld í eftirfarandi
tímapunktum: 1) eftir svæfingu, 2) 5 mín.
eftir að töng var sett á ósæð, 3) 10 mín.
eftir að töng fór af ósæð, 4) 10 mín. eftir
protamingjöf, 5) 2 klst. eftir aðgerðarlok
og 6) 24 klst. eftir að aðgerð hófst. Vökva
vægi og tími á gjörgæslu var skráð.
Albúmín og mannítól í prime vökva
minnkar þrýstingsbreytingar í vöðvahólfi
marktækt miðað við viðmiðunarhóp. Ekki
var fylgni milli breytinga á þrýstingi í
vöðvahólfi og augum en augnþrýstings
breytingarnar jöfnuðu sig mun fyrr en
vöðvaþrýstingurinn. Vökvavægi, fjöldi
hvítfruma, colloid osmótískur þrýstingur,
komplement C3d og TNF� breyttust öll
marktækt frá upphafsgildi en ekki reynd
ist marktækur munur miðað við viðmiðun
arhópinn.
Með því að bæta albúmíni og manní
tóli við prime vökva hjarta- og lungnavél
arinnar fyrir hjartaskurðaðgerð er hægt að
minnka breytingar á þrýstingi í vöðvahólfi
og hugsanlega bólgusvari og heildarbjúg
myndun líkamans.
Ágrip af MS ritgerð sem
varin var við læknadeild
Háskóla Íslands, 2006.
Leiðbeinandi:
Bjarni Torfason
Aðrir í MS nefnd:
Einar Stefánsson
Jónas Magnússon
Ásbjörn Sigfússon ✝ /
Björn Rúnar Lúðvíksson
Prófdómarar:
Hildur Tómasdóttir
Jón Ólafur
Skarphéðinsson
Höfundur er lífeindafræðingur og
er yfirperfusionisti á skurðdeild
Landspítala háskólasjúkrahúss.
liney@landspitali.is
Vöðvaþrýstingur, augnþrýstingur og bólga í
kjölfar hjartaskurðaðgerða með hjáveitu
Líney
Símonardóttir