Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Page 51
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 51
Fréttir / Norðurlandamót
eindaerfðafræði, gæðamál, menntun og siðfræði. Fyrir
lesarar voru lífeindafræðingar, læknar og lyfjafræðingur.
Fyrirlestrar voru haldnir nær linnulaust frá fimmtudags
morgni fram undir hádegi á laugardag með smá hléum en
matast var í hádegishléum á Hótel Sögu.
Veggspjalda- og tækjasýning
Tækjasýning var í anddyri og veggspjaldasýning í hliðarsal.
Veggspjöldin voru alls 33. Þar voru mættar vinkonur okkar
frá því í Stokkhólmi með veggspjaldið sitt um blóðtökur á
börnum. Verðlaun fyrir besta veggspjaldið hlutu þrír
Danir, Margit Grome, Susanne K. Pedersen og Birte K.
Sturm, það bar titilinn Smudge cells Are they a problem?.
Þessi verðlaun sem eru 10.000 sænskar krónur eru veitt úr
sjóði sem félög lífeindafræðinga á Norðurlöndum safna í af
félagsgjöldum, ein sænsk króna á félagsmann, og eru veitt
á hverri NML ráðstefnu.
Veislur og ferðalög
Á miðvikudagskvöldið 8. júní sem var fallegt og sólríkt
sumarkvöld var farið í útsýnisferð um Reykjavík og endað
uppi í Hálsum hjá fyrirtækinu Gróco. Þar voru þegnar
góðar veitingar í boði Gróco og Félags lífeindafræðinga og
innbyrgt glæsilegt útsýni yfir Grafarvoginn og Esjuna.
Eftir hádegi á fimmtudag var mótsgestum boðið að
skoða deCode. Síðdegis sama dag var móttaka í Ráðhúsi
Reykjavíkur í boði borgarstjórnar með stuðningi frá
Austurbakka. Þar mætti formaður NML2005 nefndarinnar
í faldbúningi og fleiri þátttakendur voru í þjóðbúningum.
Móttakan fór vel fram, var hátíðleg, skemmtileg og vel var
veitt.
Eftir hádegi á föstudag var mótsgestum boðið að skoða
Blóðmeina- og Klíníska lífefnafræðideild LSH við
Hringbraut, Sýklafræðideild LSH, Litningarannsóknadeild
ESD LSH og Vefjameinafræðideild LSH.
Þess má geta að hver morgunn byrjaði hjá þeim
hressustu með sundferð í Laugardalslaugina. Á föstu
deginum fóru síðan þrjár rútur, fullar af lífeindafræðingum,
í yndislegu veðri út á Reykjanes að Reykjanesvita. Síðan
Tækjasýning í anddyri. Tækjasýning í anddyri.
Ráðstefnugestir í Bláa lóninu. Við veisluborð í Bláa lóninu.