Tímarit lífeindafræðinga - júl. 2006, Page 60
60 TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl.
Ný tölvukerfi
Þann 3ja mars 2005 kl.13 voru tekin í notkun
tvö ný tölvukerfi á Blóðmeinafræðideild og
Klínískri lífefnafræðideild LSH við Hring
braut. Annað kerfið heitir FlexLab og er
rannsóknastofukerfi en hitt er rafrænt rann
sókna- og svarakerfi og heitir RoS. Þessi kerfi
eru frá Tieto Enator, viðskipti okkar eru við
sænska hluta fyrirtækisins.
FlexLab kerfið var tekið í notkun á rann
sóknastofunni í Fossvogi í desember 1999.
Rannsóknastofan á Hringbrautinni bættist
við gagnagrunn þeirra og er sama kerfið á
báðum stöðum. Þannig væri hægt að bæta
við fleiri rannsóknastofum ef vilji er fyrir
hendi.
FlexLab kerfið
Mikil vinna var að koma inn í kerfi sem
þegar var í notkun þar sem rannsóknastofan
er stór, með margar mælingar og mörg tæki.
Lesa varð saman mælingaskrár, fara yfir við
miðunarmörk og mælieiningar og búa til
nýjar mælingar eftir þörfum. Skilgreina þurfti
kontról, tæki og verðskrá. Einnig þurfti að
prófa tækjatengingar. Flest tækin gera margar
mælingar og er því mikið í húfi að tækin lesi
sjálfvirkt hvað á að mæla. Til þess þarf strika
miða á blóðglösin og strikamiðalesara við
hvert tæki sem les hvaða mælingar á að gera
úr viðkomandi glasi. Tækin skila niður
stöðum rafrænt yfir í FlexLab kerfið. Til þess
að þetta virki þarf sérsmíðaðar tækjateng
ingar fyrir hvert og eitt tæki. Best væri að
báðar rannsóknastofurnar notuðu nákvæm
lega eins tæki. Rafrænn flutningur á mælinga
niðurstöðum úr tækjunum í tölvukerfið
eykur til mikilla muna öryggi við skráningu
svara. Lífeindafræðingar staðfesta síðan allar
niðurstöður í FlexLab.
Einstaka mælingar eru ekki tækja- og
tölvutengdar sem og smásjárskoðun á þvagi
og blóði en þær niðurstöður eru handskráðar
í kerfið. Skilgreina þurfti nýja notendur og
veita þeim viðeigandi heimildir til að nota
kerfið. Búa varð til nýja beiðendur og kanna
hvaða form á útprentun svara viðkomandi
viðskiptavinur vildi hafa. Í boði er að fá safn
svör eða stök svör og velja hversu oft
útprentun á sér stað. Framtíðin er vonandi
alfarið rafræn svör.
Fréttir / tölvukerfi
Helga Jónsdóttir
Höfundur er
tölvulífeindafræðingur á
Klínískri lífefnafræðideild
Landspítala
háskólasjúkrahúss.
helgajon@landspitali.is
RoS kerfið
Rannsókna- og svarakerfið RoS er komið í gang
á Hringbrautinni og á einni deild í Fossvogi
ásamt einni heilsugæslustöð á Reykjavíkursvæð
inu. Til stendur að gangsetja kerfið í Fossvogi
og á öllum heilsugæslustöðvum höfuðborgar
svæðisins fljótlega. Starfsfólk Landspítala getur
séð svör og pantað blóðtökur í gegnum RoS
kerfið. Einnig er hægt að setja beiðnir inn í
kerfið og senda sýnaglös til rannsóknastofunnar
en þar eru beiðnirnar sóttar úr kerfinu og glösin
síðan skönnuð inn í FlexLab. Mismunandi starfs
hópar á Landspítala hafa mismunandi aðgang að
RoS kerfinu. Aðgangur að kerfinu er skilgreindur
í samvinnu við nefnd um rafræna sjúkraskrá á
Landspítala. Hægt er að skoða vissar skrár í
kerfinu og fylgjast þannig með hvaða svör starfs
fólk spítalans skoðar. Ýmsir valkostir eru við að
skoða svör. Hægt er að skoða safnsvör, stök
svör og eins er hægt að skoða einstaka mælingu
í línuriti hjá ákveðnum einstaklingi.
Til stendur að setja límmiðaprentara á deildir
spítalans þannig að deildir sem sjá sjálfar um
blóðsýnatökur fái útprentaða límmiða um leið
og pöntuð er blóðtaka. Kostir þess eru að á lím
miðanum eru m.a. upplýsingar um hvaða teg
und af glasi skal nota. Þannig skammta límmið
arnir rétt glös fyrir hverja blóðtöku og er þá
ætlast til þess að límmiðar séu prentaðir út áður
en blóðtaka fer fram. Síðan eru glösin send á
viðkomandi rannsóknastofu beiðnalaus og við
móttöku þar eru límmiðarnir á glösunum skann
aðir. Beiðnin skráist þá inn í FlexLab kerfið á
þeirri rannsóknarstofu sem tekur við sýninu.
Samantekt
Þessi tvö kerfi sem ég hef sagt stuttlega frá eru
tvö sjálfstæð kerfi. RoS sækir persónuupplýsingar
um sjúklinga í legudeildarkerfi spítalans og
sendir beiðnir í FlexLab. FlexLab sendir niður
stöður mælinga á fimm mínútna fresti í RoS
kerfið. Að öðru leyti eru þetta sjálfstæð kerfi.
Við sem vinnum með þessi kerfi hefðum gjarnan
viljað sjá meiri samlestur á milli kerfanna þannig
að sé einhverju breytt í öðru kerfinu þá breytist
það til samræmis í hinu kerfinu. Með nýjum
útgáfum á báðum kerfunum koma alltaf ein
hverjar breytingar sem eru til bóta. Svona kerfi
eru auðvitað í stöðugri þróun.