Tímarit lífeindafræðinga - jul 2006, Blaðsíða 61

Tímarit lífeindafræðinga - jul 2006, Blaðsíða 61
TÍMARIT LÍFEINDAFRÆÐINGA 2006 / 1. árgangur / 1. tbl. 61 Einu sinni voru tveir starfsmenn hagsmunafélaga sem fóru allt í einu að fá inngreiðslur ............. Sjúkrasjóður, hvað er það? Í lögum um starfskjör launafólks og skyldu tryggingu lífeyrisréttinda frá 1980 segir í 6. gr. að atvinnurekanda sé skylt að greiða í sjúkra sjóð viðkomandi stéttarfélags. Hið opinbera hefur ekki talið sig falla undir þessi lög en á almennum markaði er regla að greiða í sjúkra sjóði. Fram til 1996 unnu langflestir háskóla menn hjá hinu opinbera en eftir að Íslensk erfðagreining kom til skjalanna fjölgaði mjög háskólamenntuðum starfsmönnum á almenn um vinnumarkaði. Félagi íslenskra náttúru fræðinga og Meinatæknafélagi Íslands (nú Félag lífeindafræðinga) fóru að berast greiðslur í sjúkrasjóð sem standa áttu undir tryggingum félagsmanna vegna t.d. langvarandi veikinda. Starfsmenn félaganna á þeim tíma, Þrúður Har aldsdóttir, hjá FÍN, og Halla Hauksdóttir, hjá MTÍ, sáu fram á að þessir peningar kæmu að engum notum á bankareikningum eða í verð bréfum. Ljóst var að smíða þyrfti reglur um úthlutun og aðra stjórnun. Eftir að hafa skoðað reglur hinna ýmsu sjúkrasjóða báru þær upp tillögu við stjórn og framkvæmdastjóra BHM um að ráðist yrði í stofnun sjúkrasjóðs bandalagsins. Var það sam þykkt og farið var í að semja reglur og sam þykktir fyrir þennan nýja sjóð í samræmi við reglur annarra sjóða með svipað hlutverk. Sjúkrasjóður BHM stofnaður Stofnfundur sjóðsins var haldinn 1. apríl 1999. Hlutverk sjóðsins er: • Að veita félagsmönnum í aðildarfélögum Bandalags Háskólamanna fjárhagsaðstoð í veikinda-, slysa- og dánartilfellum svo og í elli- og örorkutilvikum. • Að styðja og efla félagsmenn vegna end urhæfingar eftir slys eða sjúkdóma. • Að styðja og efla félagsmenn í forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum sem snerta öryggi, heilsufar og heilbrigði starfs manna. Í sjóði voru 4,2 milljónir þegar hér var komið sögu. Fyrstu úthlutunarreglur voru mjög var færnar þar sem ekki var mikið í sjóði og fyrir séð að ein einasta umsókn um dagpeninga gæti farið langt með höfuðstólinn. Fast var haldið um budduna í upphafi og bókað á einum fyrsta stjórnarfundi að ekki skyldi keypt meðlæti með kaffinu og fram til ársins 2002 tók stjórnin enga þóknun fyrir stjórnarstörf sín. Ávöxtun sjóðsins Gengið var til samninga við Verðbréfamarkað Íslandsbanka um umsýslu sjóðsins. Stjórnin með Þrúði Haraldsdóttur, fyrsta formann SBHM, í broddi fylkingar hefur haldið fast um taumana í fjárfestingastefnu sjóðsins og oft staðið á móti ráðleggingum þjónustuaðila um að fjárfesta í erlendum hlutabréfum eða á annan hátt sem ekki hefur verið talið 100% öruggt. Í framhaldi hefur sjóðurinn dafnað mjög vel á sínum stutta líftíma. Hefur í reynd sýnt bestu ávöxtun innan sjóða BHM. Eins og áður sagði voru í upphafi 4.2 milljónir í sjóði og eru niðurstöður ársreikninga eftirfarandi: 4.20 milljónir 1999 10.08 milljónir 2000 16.80 milljónir 2001 27.42 milljónir 2002 43.80 milljónir 2003 55.60 milljónir 2004 65.00 milljónir 2005 Fyrsta umsókn um styrk kom 24. maí 2002 og fyrsta umsóknin um dagpeninga kom í október það ár. Alls urðu umsóknirnar 17 árið 2002 að upphæð kr. 426.610. Á seinasta ári var úthlutað rúmum 10 milljónum vegna 327 umsókna. Úthlutunarreglur hafa verið rýmkaðar eftir því sem sjóðurinn hefur fitnað. Nú síðast var ákveðið, vegna góðrar stöðu sjóðsins, að gefa sjóðfélögum kost á að sækja um styrk til for varna kr. 50.000. Þessi styrkur verður þó aðeins árið 2006 þar sem skv. tryggingastærð fræðilegri úttekt stendur sjóðurinn ekki undir úthlutun slíkra styrkja á hverju ári. Saga sjúkrasjóðs BHM Félagsmál / sjúkrasjóður BHM Halla Hauksdóttir Höfundur er lífeindafræðingur, er í stjórn sjúkrasjóðs BHM og er verkefnastjóri lífsýnasafna Rannsóknarsviðs Landspítala háskólasjúkrahúss. hallah@landspitali.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lífeindafræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lífeindafræðinga
https://timarit.is/publication/2067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.