Freyja - 01.01.1908, Qupperneq 5
X. 6-7. FREYJA 141
Nova Scotia, og Manitoba (í Manitoba einungis þær konur er
fasteignir eiga). Sama ár veittu bœöi Dakota ríkin, Montana,
Arizona og New Jersey konum atkv. í skólamálum. Auk þess
veitti Montana öllum skattskyldum konurn atkvœöi í öllum
innanríkismálum, þar sem atkvœöin voru bundin viö skatt-
greiðslu á annað borö.
Árið 1888 fengu konur á Englandi og Skotlandi atkvæöi
í sveitamálum, í British Columbía og Norö-vestur héruöun-
um (Territories) í sveitamálum, í Quebec fengu ógiftur konur
og ekkjur atkv. í sveitamálum, og atkv. í skólamálum í ríkinu
Illinois.
Arið 1893 veitti Connecticut konu'm atkvœöi í skólamál-
um, Colorado og Nýja Sjáland fullkomin þegnréttindi- 1894
fengu konurnar í Ohio atkvæði í skólamálum, nokkurskonar
séreignarrétt í Iowa, atkvœði í safnaöamálum í Danmörk og
í safnaöa og héraðsmálum á Englandi. Árið 1895 fengu konur
full þegnréttindi í Suöur Australíu, Utah og Idaho, og atkv.
við héraöskosningar í Danmörk.
Árið 1897 fengu konur í Noregi hluttökurétt í safnaöar-
málum-
Árið 1893 fengu konur á Irlandi atkvæðisrétt við allar
embættismannakosningar nema þingmanna, í Minnesota var
konuin þá leyft.að greiöa atkvœði með nefndum erstjórna áttu
bókasöfnum ríkisins og Delaware gaf skattskyldum konum at-
kvœði í skólamálum. Um sama leyti veitti Frakkland kon-
um sem fengust við verzlunarstörf atkvœðisrétt við kosningu
þeirra manna er í dómum sátu þá um verzlunarmál var að
ræða og Louisiana gaf skattskyldum konum atkvœði í öllum
málum þar sem sá réttur var áður bundinn við skattgreiðslu
Árið 1900 gaf Wisconsin konum atkvœðisrétt í skólamálum,
Sama árið veitti V. Australía fullkomin þegnréttindi giftum
konum og ógiftum.
1901 gaf New York skattskyldum konum f þorpum og
bæjum atkv í öllum málum sem snertu skattálögur innan
þeirra takmarka, Þá gaf og Noregur konum atkvœði í svm.
og ríkisþingið í Kansas feldi með nœrfelt öllum atkvœðum og
talsverðri glettni uppástungu, um að afnema atkvœöisrétt