Eir - 01.01.1900, Side 15
16
gert ráð fyrir að 20 sjúkradágar komi á hvern af hinum sið-
artöldu, með 3 kr. kostnaði á dag, samsvarar þotta fyrir New-
port 20 X 3 X ,no/3 X 10,2 X 24,756 = 505022,40 kr. Til
samans verður þessi hagnaðui' af fyrirkomulaginu fyrir Newport
ca. 530,000 krónur, en svo má reikna margt fleira.
Þessi reikningur er þó ekki sórlega nákvæmur; hór er
nefnilega sumpart bygt á breytilogri dauðratölu, en ákveðinni
tölu sjúkradaga, en hvorutveggja er líklegt að breytist til
batnaðar við það fyrirkomuiag, sem bætir hið almenna heil-
l)rigðisástand. Væru töflurnai' fullkomnar þyrftu þær þvi að
innihalda dauðratöluna með tilheyrandi sjúkradögum á undan
og eftir að þessar heilbrigðisráðstafanir eru gerðar, sömuleiðis
tölu sjúkradaga á undan og eftir í þeim sjúkratilfellum, er ekki
leiða til dauða. Hvernig þessar töflur í einstökum atriðum
mundu líta út ei' ekki gott að segja fyrirfram; það er okki
ólíklegt, að tala þeirra sjúkradaga, or til dauða leiða, mundi
stækka, en aftur á móti minka að miklum mun tala þeirra
sjúkradaga, er hafa bötnun í för með sér, og þar sem þessi lið-
urinn er miklu stærri mundi í útkomunni verða stór hagnaður.
Þegar svo kemur að því, í þessum hagnaðarreikningi, að taka
tillit til margs fleira, t'. d. að virða i peninga hveit mannslíf,
er sloknar ákveðnum árum áður en þörf er á, vegna óheppi-
legs aðbúnaðar í þeim greinum, er hér ræðir um, þá vandast
málið, góðir menn og bræður. Ég ætla heldur ekki að fara
út í það að þessu sinni, en læt hér staðar numið. I’að æt.ti
að visu við, ef tími væri tii, að athuga nú frekar vora eigin
hagi í þessum greinum, að bera saman ástandið hjá oss við
það, sem sagt hefir verið. Því þarf ekki að leyna, að vér
stöndum í mörgum af þessum atriðum langt á baki annara,
sérstaklega er einhver miðaldabragur hjá oss á allri meðferð á
skolpi og saurindum. Ef ég fæ tima ti! seinna, langar mig til
þess að koma aftur að þessum málum. að þessu sinni verð ég
að nema staðar. Það sem ég hefl sagt, ætti líka að geta gefið
mönnum ýmsar þarflegar bendingar til að byrja með, menn
geta nú sjálflr borið saman og séð í hverju oss er sérstakiega
ábótavant. Ég gæti auðvitað íarið nokkrum orðum um sóða-